Fyrr í vikunni fagnaði þjóðin að verkfalli kennara væri loksins lokið en deilur kennara við ríkið og sveitarfélög höfðu staðið yfir síðan í fyrra. Gleðin var áþreifanleg í samfélaginu eftir undirritun og var fólki létt og hugsaði að nú væri hægt að halda áfram með samfélagið í góðri samstöðu með nýja ríkisstjórn við stýrið.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var þó ekki glöð. Hún lét hafa eftir sér að verðskuldaðir samningar kennara settu aðra kjarasamninga í uppnám þrátt fyrir að nánast öll þjóðin hafi verið sammála að kennarar hafi fengið alltof lág laun og hafi gert árum saman.
Sólveig Anna hefur barist mikið og vel fyrir launum og réttindum sinna félagsmanna í Eflingu síðan hún var kjörin formaður árið 2018 og hún hefur yfirleitt haft þjóðina með sér í liði. En eftir að hafa sýnt taktleysi á borð við ummæli sín um launamál kennara má spyrja hvort hennar tími sé hreinlega liðinn …