Miðflokkurinn hefur undanfarna mánuði tekið flugið í skoðanakönnunum og nú er svo komið að hann er kominn yfur 10 prósenta fylgi og orðinn stærri en Framsóknarflokkurinn. Þessi árangur flokksins er sannkölluð upprisa fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann sem þurfti að þola mikil áföll í seinustu kosningum og situr nú á þingi við annan mann.
Þessi staða Miðflokksins er Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins, og félögum hans klárlega mikið áhyggjuefni. Svo virðist sem „ætli sé ekki best“ stemmningin í kringum flokkinn sem skilaði stórsigri sé gufuð upp.
Þungavigtarmenn innan Framsóknar vilja skipta formanninum út og setja Lilju Alfreðsdóttur varaformann í formannsstólinn. Því er fleygt að innan Miðflokksins séu ráðamenn á allt öðru máli og vildi endilega að Sigurður Ingi sitja sem lengst og tryggi Miðflokknum góðan árangur í komandi kosningum …