Umboðs- og auglýsingamaðurinn glaðbeitti,Valgeir Magnússon, mörgum kunnur sem Valli Sport, hefur í nógu að snúast þessa daganna. Ekki einungis er hann umboðsmaður Heru Bjarkar Þórhallsdóttur, sem mun taka þátt í Eurovision-keppinni í ár, heldur er hann einnig heilinn og hjartað á bakvið kosningabaráttu Baldurs Þórhallssonar prófessors sem samkvæmt nýjustu könnun Prósent er hann með þónokkuð forskot á Jón Gnarr, Katrínu Jakobsdóttur og Höllu Tómasdóttur.
Konan á bakvið kosningabaráttu Höllu er Vígdís Jóhannsdóttir en hún starfaði einmitt með Valla í tæp 20 ár á auglýsingastofunni PIPAR\TBWA og mun væntanlega gera allt í sínu valdi til að saxa á forskot læriföður síns í kosningabaráttunni. Róðurinn gætiþyngst hjá Valla og lærlingi hans ef svo fer sem horfir og Katrín Jakobsdóttir stígur formlega inn í baráttuna. Þá mun Piparfólkið þurfa á öllu sínu að halda …