Sá dáði Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hefur staðið sig eins og hetja í fremstu víglínu gegn Covid-19 og uppskorið að mestu bæði aðdáun og traust. En kappinn er seinheppinn ef marka má að hann er nú í þriðja sinn kominn í sóttkví eftir að hafa komist í návígi við smitaðan einstakling. Víðir lenti einnig í sóttkví í fyrri bylgjunni þegar hann þurfti að dvelja á hóteli, fjarri fjölskyldu sinni, eftir að smit kom upp. Þá sendi Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, dagskrárgerðarkona á Rás 2, Víði í sóttkví eftir að hún smitaðist. Víðir er Því orðinn hagvanur í sóttkvínni og væntanlega dauðþreyttur á þessu ástandi og óheppninni. Hann getur þó fagnað því í einsemd sinni að hafa sloppið við smit …