Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra vísinda, hefur leynt og ljóst stefnt að æðstu forystu í Sjálfstæðisflokknum. Í yfirstandandi kosningabaráttu siglir hún lygnan sjó og mun leiða annað Reykjavíkurkjördæmið.
Toppslagurinn í flokknum er í Kraganum þar sem Jón Gunnarsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður berjast upp á líf og dauða. Þórdís Kolbrún er með stuðning Bjarna Benediktssonar formanns.
Hermt er að Áslaug Arna sýni vígtennurnar og beiti sér nú af afli í þágu Jóns Gunnarssonar. Aðstoðarmaður hennar, Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Kópavogi, er að sögn á útopnu við að tryggja Jóni sem besta útkomu. Falli Þórdís Kolbrún fyrir Jóni myndi það létta Áslaugu mjög róðurinn að því að verða formaður í flokknum …