Sjálfstæðismenn eru margir hverjir sjóðandi reiðir vegna þeirra frelsissviptinga sem fylgja sóttvörnum í nýjustu bylgju Covid. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti í morgun skoðun sinni á minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sem felur í sér tillögur um gríðarlegar aðgerðir í að loka fólk af. Jafnframt boðaði Vilhjálmur að fleiri úr hópi Sjálfstæðismanna myndu rísa gegn ofstjórnuninni ef Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fellst á tillögurnar óbreyttar. Margir gagnrýna einnig að fólki er stefnt þúsundum saman í hraðpróf vegna veirunnar og ekkert spáð í fjöldatakmarkanir í þeirri gróðrarstíu smita. Svo virðist sem Þórólfur og félagar í sóttvarnarteyminu séu að missa tökin …