Snorrri Másson, þingmaður Miðflokksins, er eitt af undarbörnum kosninganna. Á skömmum tíma hefur hann losð sig frá harkinu á Stöð 2 og er orðinn þingmaður.
Snorri kann þá list að vekja á sér athygli. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, skammaði hann eins og hund fyrir að kunna ekki mannasiði eftir að hann breiddi úr sér og lagði einn undir sig tvö borð á veitingastað.
Snorri svaraði Kára fullum hálsi en bauð jafnframt sættir gegn því að þeir færu í sjómann. Hann upplýsti þetta á kosningarvöku Ríkisútvarpsins í nótt þegar hann fagnaði því af einlægni að hafa flogið á þing.
Það fylgdi sögunni að Kári hefði ekki svarað einvígisáskorun Snorra, sem nú vonast til þess að komast í ríkisstjórn sem þó verður að teljast vera fremur ólíklegt en alls ekki útilokað …