Það verður ekki annað sagt en að Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, hafi tekið yfir jólalagamarkaðinn á undanförnum árum eftir að hafa að miklu leyti tekið yfir rappheiminn á Íslandi.
Allt byrjaði þetta fyrir jólin 2019 þegar rapparinn gaf út lagið Þegar Þú Blikkar en honum til stuðnings í jólalaginu er hinn frábæri Björgvin Halldórsson. Síðan þá hefur lagið náð að festa sig rækilega í sessi sem eitt ef mest spiluðu jólalögum hvers árs og fer þar í flokk með lögum á borð við Snjókorn falla í flutning Ladda og Ef ég nenni eftir Helga Björnsson.
Hann lét það ekki duga heldur bætti í þegar hann út jólaplötu með vinum sínum í hljómsveitinni ICEGUYS í fyrra og á Árni nú þrjú af tíu vinsælustu íslensku jólalögunum á streymisveitunni Spotify. Þá gaf sveitin einnig út jólalag fyrir jólin í ár en of snemmt er að leggja mat á vinsældir þess svo snemma …