Fimmtudagur 21. nóvember, 2024
-7.8 C
Reykjavik

Hversu lengi ætlum við að láta þetta yfir ykkur ganga?

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

6,5 milljarðar á síðustu þremur mánuðum og 14,1 milljarður á fyrri hluta ársins. Samanlagður hagnaður stóru bankanna þriggja var rétt tæpir 37 milljarðar á þessum sex mánuðum. Það eru 36.900.000.000,00 kr. Ef við ímyndum okkur vél sem pentaði milljón á dag tæki það hana 101 ár að prenta hálfs árs hagnað bankanna þriggja.

Landsframleiðsla á fyrri hluta þessa árs var líklega um 1440 milljarðar króna. Hagnaður bankanna þriggja var því um 2,5% af landsframleiðslu.

Engin þjóð önnur á byggðu bóli myndi sætta sig við slíka geggjun. Hvað haldið þið að almenningur í Bandaríkjunum gerði ef tilkynnt væri að samanlagður hagnaður bankanna á Wall Street væri 570 milljarða Bandaríkjadala hagnað eitt árið?

Þrír stærstu bankarnir í Noregi eru um 89% af bankakerfinu þar. Ef ég reikna hagnað þeirra upp eins og allt kerfið skilaði sambærilegum hagnaði þá nær það ekki 0,9% af landsframleiðslu. Ef Íslendingar byggju við sambærilegt bankakerfi myndi árlegur hagnaður íslensku bankanna lækka um 47 milljarða króna.

Til hvers erum við að draga það fé út úr hagkerfinu og færa yfir í hagnaði bankakerfsins? Má fólk og fyrirtæki ekki bara halda þessu fé hjá sér, eins og raunin er í Noregi? Það er ekki eins og Norðmenn búi við sult og seiru vegna þess að bankakerfið græði ekki nóg. Fyrir fáeinum árum jókst hagnaður bankanna í Noregi svo samanlagður hagnaður þeirra sló hátt í 1,5% af landsframleiðslu. Það varð allt vitlaust í Noregi. Verkalýðshreyfingin, stjórnmálafólk, þingmenn og leiðarahöfundar blaðanna helltu sér yfir bankanna og tilkynntu þeim að Norðmenn væru ekki fávitar, þeir myndu aldrei sætta sig við að búa við blóðsugukerfi eins og bankarnir voru augljóslega að breytast í.

En á Íslandi, hvað gerðist það? Ríkisstjórnin sér tækifæri til að selja ríkisbankana ódýrt, einkavæða þetta rör sem liggur ofan í mænu landsmanna það sem hægt er að soga upp alla orku úr fólki og fyrirtækjum. Og þegar 3% ríkasta fólkið á landinu fær tækifæri til að kaupa með góðum afslætti hlutdeild í þessum stjórnlausa gróða þá er það kynnt sem framfaraskref á Íslandi. Loksins, loksins, loksins erum við búin að færa þessa skattheimtu yfir til ríka fólksins. Það var slegið í bjöllu í Kauphöllinni og allir viðskiptablaðamenn landsins grétu yfir fegurð augnabliksins.

- Auglýsing -

37 milljarða hagnaður bankana á fyrri hluta ársins gæti gefið til kynna að þeir endi árið með tæplega 74 milljarð hagnað eftir árið. Það er um 200 þús. kr. á hvert mannsbarn. 800 þús. kr. sem hver fjögurra manna fjölskylda borgar í hreinan hagnað til bankanna á hverju ári.

Hversu lengi ætlar þjóðin að sætta sig við þessa geðveiki? Hvað er það sem bankarnir hafa gert fyrir ykkur svo þið sættið ykkur við að fertugasta hver króna sem rúllar í gegnum hagkerfið endi sem hreinn hagnaðar bankanna, eftir skatta og skyldur?

Hvað gengur eiginlega að okkur þessari þjóð? Og svo eru þessar hörmungarfréttir birtar eins og þær séu fagnaðarefni. Nei, sko, bravó hvað bankarnir okkar eru duglegir? Talandi um gerandameðvirkni; góður guð, hvað þetta er sjúkt.

- Auglýsing -

Höfundur er félagi í Sósíalistaflokk Íslands.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -