Fimmtudagur 24. október, 2024
4.9 C
Reykjavik

Tilraunaverkefnið Ísland

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þetta er eins og eitthvað tilraunaverkefni. Dreifið einni evróskri smáborg á 100 þúsund ferkílómetra eyju aðeins sunnar en Svalbarða og gefið þeim gjaldmiðil og sjálfstæði og fisk og fullt af orku og allskonar. Gefðu þeim líka svona inni-veður nema svona 20 daga á ári. Sjáum hvað gerist þegar allir eru alltaf inni og engar nágrannaþjóðir til að auka á samkenndina og heilbrigðan samanburð.

Sjáum hvað gerist þegar liðið fer að tríta trauma móðuharðinda með fótanuddtækjum, wi-fi múffum, Bluetooth Buttplugs og plex. Sjáum hvað gerist þegar kynslóðirnar hætta að tala saman og fara í fýlu því við ætlum að skipta einu tungumáli út fyrir annað og engin tekur eftir því. Veljum 1000 manns og gerum þau stjarnfræðilega rík og þau velja sér svo fulltrúa sem sjá um mannauðsmál og ráðningar. Hópurinn ræður einn í stóra bankann þar sem allt gullið er geymt og nokkra sem semja lögin en fyllum svo upp í með svona selebum sem gera tónlist og hamborgara. Prófum að þrælavæða lág-stéttina og gerum milli stétt að svona lág-stétt, búum svo til lagskipta efri stétt þar sem þessir þúsund útvaldir geta komið sér fyrir en allt eftir uppskrift, höfum mörg lög og svona þokukennda stemningu og tungumálaörðuleika milli lagtertunar og 99 prósentsins.

Sjáum hvað gerist þegar við seljum allt og setjum í áskrift það sem við stelum úr sjóðnum. Segjumst bara eiga þetta og seljum´etta.  Köllum´etta útópíu. Við framleiðum “sóma” í allskonar útfærslum og köllum það lyf, skerðum endurupptöku á boðefnum og gerum fólkið að mörgum og þannig verða margir hræddir. Ef fólki líður svo illa og sætta sig ekki við, þá segjum þeim bara að þetta sé í dna´inu þeirra og því bara örlög þeirra og útfrá gefnum forsendum. Þetta er frábært krakkar, höfum þau reið því reitt fólk er hrætt fólk og hrætt fólk fer í röð og bíður eftir leifum. Reitt fólk kýs rétt og mætir í vinnuna og telur sig þakklátt.

Höf: Gunnar Dan Wiium, verslunarstjóri Handverkshússins, þáttarstjórnandi hlaðvarps Þvottahússins og umboðsmaður.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -