- Auglýsing -
Fyrir mörgum árum var ég ráðinn til að skemmta fólki með söng og gítarspili á krá í Hveragerði. Það gekk áfallalaust og segir ekki meira af því. Á þeim tíma átti ég forláta Volkswagen Golf-bifreið, sem nýttist mér vel og, eins og gjarna er sagt, gerði allt sem af henni var ætlast og reyndar eitt sem ég hefði alveg getað verið án.
Þannig var mál með vexti að móðumyndun á innanverðri framrúðu var helst til mikil þegar blautt var úti. Það er afar bagalegt því það er grundvallaratriði, eins og Sherlock Holmes sagði gjarna, að maður sjái út um framrúðuna þegar maður situr undir stýri…
Lesa meira hér