Ég samdi smá tilbrigði við stef, með sterkri tilvísun í Slysaskot í Palestínu eftir Kristján frá Djúpalæk. Ég er á engan hátt samt að reyna að stíga í hin stórkostlegu spor þess mikla meistara.
Ég hef undanfarið séð allt of mikið af ljósmyndum af börnum sem drepin hafa verið á Gaza en á einni þeirra hangir stúlka á einhverju járnröri í rústum húss en á hana vantaði báðar lappirnar eftir sprengjuárás.
viljaskot í Palestínu
lítil stúlka, lítil stúlka
lítil svarteygð, dökkhærð stúlka
lafir sprengd
dimmrautt blóð í sviðnu sári
stjaksett, hengd
en óttastu ekki litli kútur,
þó í maganum sé stærðar hnútur
litli kútur, mömmusveinn
Í baki þínu stattu beinn
misstu ekki svefninn væna
lát ei viti þínu ræna
sjáðu, það er allt í blóma
óþarfi að fella dóma
því hann og hún
þau eru brún
dauðu börnin eru brún
Höf: Lubbi klettaskáld