Föstudagur 14. febrúar, 2025
2.8 C
Reykjavik

Yfirlýsing frá starfsfólki Breiðholtsskóla vegna fréttaflutnings af ofbeldi ungmenna

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Skólinn okkar, Breiðholtsskóli, er góður skóli með vinalegan brag og skólamenningu. Í
skólanum er öflug frímínútnagæsla. Verði gæslufólk sjálft vitni að stríðni eða annarri
óæskilegri hegðun, eða barn lætur vita af henni, eru öll slík mál tekin föstum tökum
eins og annar ágreiningur barna í frímínútum. Við vinnum úr öllum málum sem geta á
einhvern hátt flokkast sem áreitni eða ofbeldi.

Virk og öflug eineltisstefna er sömuleiðis við skólann og er ákveðið eftirlitsferli sett af
stað um leið og grunur leikur á að um einelti geti verið að ræða. Þannig er fjölmörgum
mögulega slæmum samskiptum afstýrt. Innan bekkja er unnið með vináttu, góðan
bekkjaranda og einkunnarorð skólans; ábyrgð, traust og tillitssemi.

Börn í íslenskum grunnskólum eiga í auknum mæli í tilfinninga-, hegðunar-, og
félagslegum vanda, auk námsvanda. Þau geta sýnt ógnandi hegðun, meitt og strítt.
Börn eru jafnvel í slagtogi við nemendur úr öðrum skólum og sýna utan skólatíma
ógnandi og ofbeldisfulla hegðun. Slíkt getur smitast inn í skólana í formi ótta
skólasystkina við þau. Starfsmenn skóla hafa ekki lagalegar heimildir til að grípa inn í
atburðarás sem gerist að vinnudegi loknum og geta með því beinlínis ógnað eigin
öryggi. Það er á ábyrgð forráðamanna, félagsþjónustu, lögreglu,
barnaverndaryfirvalda og Reykjavíkurborgar. Af allri umræðu um skólamál og vaxandi
ofbeldi í samfélaginu er ljóst að sveitarfélög þurfa að fara að hugsa sinn gang og
tryggja bæði öryggi nemenda og starfsmanna á sínum vinnustöðum.

Sérhverjum sem kemur að grunnskólamálum má vera ljóst að alda harðnandi
ofbeldis hefur verið að skella á samfélaginu öllu og þar með skólum undanfarin ár.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar er á meðal þeirra aðila sem hafa verið afar
vel upplýstir um þau mál og ósennilegt verður að telja að Umboðsmaður barna hafi
setið hjá garði þegar kemur að þekkingu um vaxandi ofbeldi. Yfirlýsingar þess efnis í
fjölmiðlum að ofangreindir aðilar kannist ekki við þessa þróun kemur starfsmönnum
Breiðholtsskóla í opna skjöldu og er í hrópandi ósamræmi við þá upplýsingagjöf sem
verið hefur á undanförnum misserum. Við veltum nú fyrir okkur hvað veldur og hvers
vegna boltanum er varpað aftur á starfsmenn þegar úrræðaleysi og aðstoð við börn í
vanda er alfarið á ábyrgð sveitarfélagsins.

Alls staðar og ítrekað er komið að lokuðum dyrum. Nemendurnir skulu sækja sinn
hverfisskóla og þar með ógna bekkjarsystkinum sínum, þó ekki sé nema með
nærverunni einni. Þeir komast ekki að í Brúarskóla, Klettaskóla, BUGL eða annars
staðar vegna langra biðlista. Enn lengri er biðin eftir að fá greiningu á
þroskafrávikum. Í skólastefnu landsins, Skóla án aðgreiningar, eru heldur engin sérstök hegðunarver í boði innan skólanna. Breiðholtsskóli hefur reynt að setja eitt
slíkt á laggirnar en það vantar bæði starfsfólk og fjármagn. Það er því krafa okkar að
ríki og sveitarfélög grípi strax til aðgerða, tryggi börnum í vanda þau úrræði sem þau
eiga rétt á, tryggi öðrum nemendum þá friðsamlegu skólagöngu sem þau eiga rétt á
og hlúi jafnframt að sínu starfsfólki með því að viðurkenna vandann. Þau fari í
uppbyggingu og lagabreytingar til að bregðast við, en hætti að vísa ábyrgðinni á
okkur sem erum á gólfinu.

Gengjamyndun er ekki bundin við Breiðholtið, hún þekkist víða. Við grafalvarlegt og
vaxandi þjóðarmein er að etja. Börnin líða fyrir það á meðan stjórnvöld fljóta sofandi
að feigðarósi. Samfélagslegur kostnaður verður aðeins sífellt hærri og við starfsfólkið
upplifum daglega ábyrgðar- og skilningsleysi ráðamanna á eigin skinni. Við finnum
einnig til vanmáttar og öryggisleysis innan vinnustaðarins. Það fást fáir til að starfa
lengi við slíkar aðstæður.

- Auglýsing -

Breiðholtsskóli er nú gerður að andliti ofbeldismenningar og umfjöllun í fjölmiðlum
nokkuð einhliða. Við sem starfsfólk við skólann gerum allt sem í okkar valdi stendur,
innan þeirra verklagsreglna sem okkur eru settar. Fyrir hönd skjólstæðinga okkar og
okkar sjálfra krefjumst við tafarlausra úrbóta í þessum málaflokki heilt yfir.
Starfsfólk Breiðholtsskóla harmar úrræðaleysi stjórnvalda.

Virðingarfyllst
Kennarar, skólaliðar og annað starfsfólk Breiðholtsskóla

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -