Fimmtudagur 30. janúar, 2025
2.8 C
Reykjavik

Óvissa uppi í hagkerfinu

Hagstofa Íslands

Stjórnmálamenn segja stoðir íslenska hagkerfisins traustar, en augljós merki eru þó komin fram um kólnun.

Nýjar tölur um mikinn samdrátt í hreinum nýjum útlánum – eða yfir 50 prósent – benda til þess að framundan geti verið tími hagræðingar hjá mörgum fyrirtækjum.

Annars óvissuþáttur – sem getur skipti miklu máli – er óveðurský á alþjóðamörkuðum. Þegar allt kemur til alls er Íslands háð góðu aðgengi að mörkuðum, og áhuga ferðamanna á því að koma til landsins.

Vextir hafa farið lækkandi, og varnaðarorð um að heimsbúskapurinn sé á leið í meiri hægagang, heyrast víða. Ein merki um gjörbreyttan veruleika frá því sem verið hefur á undanförnum árum, eru færri komur fólks erlendis frá til að vinna hér á landi, en innflytjendur hafa verið yfir 70 prósent nýrra skattgreiðenda hér á landi, á undanförnum fimm árum.

Nánar í nýjasta tölublaði Mannlífs og á vef Kjarnans.

Mynd / Unnur Magna

Heimildamyndin um Röggu Jónsdóttur sögð „fáguð og forvitnileg“

Heimildamyndin The Seer & The Unseen verður frumsýnd á RIFF á laugardaginn í Bíó Paradís. Sara Dosa, leikstjóri myndarinnar, verður viðstödd frumsýninguna og ræðir myndina eftir sýninguna.

Myndin segir sögu Ragnhildar „Röggu“ Jónsdóttur, ömmu, náttúruverndarsinna og sjáanda.

„Með hennar augum kynnumst við krafti trúar og skoðum verðmætamat okkar hvers virði steinn í hrauni er eða hlutabréf á markaði,“ segir í tilkynningu um myndina.

Myndin hefur fengið góða dóma. Í dómi Variety var hún til dæmis sögð „fáguð og forvitnileg“.

Stiklu úr myndinni má sjá hér fyrir neðan.

100 manns sagt upp hjá Arion banka

|
Arion

Arion banki fækkar starfsfólki um eitt hundrað.

Stjórn Arion banka samþykkti á fundi sínum í morgun nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. Sviðum bankans fækkar um tvö og ýmis verkefni færast til innan bankans með það að markmiði að einfalda starfsemina. Þetta kemur fram á vef Arion banka.

Mannlíf greindi fyrst frá skipulagsbreytingunum á sunnudaginn. Útfærsla skipulagsbreytinganna var þá á lokametrunum.

Í tilkynningu Arion segir að markmið breytinganna sé að styrkja samkeppnishæfni bankans og auka arðsemi eiginfjár.

„Starfsfólki bankans mun við þessar breytingar fækka um 12% eða um eitt hundrað. Þar af starfa um 80% í höfuðstöðvunum bankans og um 20% í útibúum. Vinnumálastofnun hefur verið greint frá þessu,“ segir í tilkynningu á vef Arion.

„Þetta verður erfiður dagur en við kveðjum í dag hæft og gott samstarfsfólk sem ég efast ekki um að muni láta að sér kveða á nýjum vettvangi,“ er haft eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka.

Sjá einnig: Allt að 80 manns sagt upp hjá Arion banka

Byrjuðu í bílskúrnum heima

Góðir og spennandi veitingastaðir leynast víða, hvort sem er í sveit eða bæ. Veitingastaðurinn Mika í Reykholti í Biskupstungum er dæmi um einn slíkan. Einn sólríkan dag í sumar hittum við hjónin Michał og Bożenu Józefik sem eiga og reka staðinn.

Hjónin komu hingað til lands frá Póllandi í ævintýraleit árið 1997 og urðu Flúðir fyrir valinu, en þar hafa þau alltaf búið og unnið hin ýmsu störf. Árið 2011 opnuðu þau svo Mika en fyrst voru þau einungis með einfalt kaffihús þar sem heimagerða konfektið þeirra var aðalsmerki þeirra.

„Við áttum okkur draum um að hefja okkar eigin framleiðslu og jafnvel að opna veitingastað. Við byrjuðum í bílskúrnum með snakk úr maískorni og ostapopp en það gekk illa,“ segir Michal meðal annars. Hjónin segja sögu sína í nýjasta blaði Gestgjafans.

Þau segja margt hafa breyst frá því áður var þegar þau byrjuðu bara tvö og fáir gestir komu en svo jókst aðsóknin hægt og sígandi og í dag eru þau eru með fjölmargt starfsfólk í vinnu og meira en nóg að gera.

Í 9. tölublaði Gestgjafans er að finna uppskrift að kartöflupönnukökum (Placki ziemniaczane) sem er fjölskylduuppskrift frá Póllandi.

Lestu viðtalið við Michal og Bożenu í heild sinni í 9. tölublaði Gestgjafans.

Tryggðu þér áskrift að Gestgjafanum í vefverslun

Myndir / Aldís Pálsdóttir

Jólalína IKEA 2019 – Hátíð fyrir alla

Jólalína IKEA í ár er innblásin af skandinavískri arfleifð þar sem tilgangurinn er að hvetja til samvista þar sem fólk nýtur hátíðanna saman.

Línan inniheldur allt frá borðbúnaði til gjafapappírs líkt og fyrri ár og náttúruefni eru einkennandi en með efnisvalinu vill fyrirtækið hvetja til aukinnar umhverfisvitundar og sjálfbærni.

Rauðir, bláir og náttúrulegir tónar eru einkennandi. Mynd/IKEA
Mynstrin eru innblásin af skandinavískri arfleifð. Mynd/IKEA
Þriggja hæða veisla. Mynd/IKEA
Skemmtilegar svuntur og kokkahatta fyrir börnin er að finna í línunni. Mynd/IKEA
Mynd/IKEA
Sláðu tvær flugur í einu höggi. Hér er viskustykki nýtt sem gjafapappír. Mynd/IKEA

Einkennislitirnir þetta árið eru rauðir, bláir og náttúrulegir litatónar og mynstrin eru klassísk en IKEA leggur einnig áherslu á að auðvelt sé að nota vörurnar ár eftir ár.

Jólalínan verður fáanleg frá 11. október næst komandi og hlökkum við á ritstjórn Húsa og híbýla svo sannarlega til komandi hátíða. 

Klassísku pappastjörnurnar koma í nokkrum gerðum. Mynd/IKEA
Mynd/IKEA
Öll fjölskyldan getur tekið þátt í jólaundirbúningnum saman. Mynd/IKEA
Mynd/IKEA
Rúmfötin eru úr 100% sjálfbærri bómull. Mynd/IKEA
Jólalínan inniheldur fallegan textíl. Púðaverin eru úr 100% sjálfbærri bómull. Mynd/IKEA
LED-ljósaskreytingar lífgar upp á skammdegið. Mynd/IKEA
Einfaldleikinn er í fyrirrúmi. Mynd/IKEA
Prófaðu nýjar leiðir við innpökkunina. Mynd/IKEA
Mynd/IKEA
Hér er klassískur pappír settur í nýjan búning. Mynd/IKEA

Hlustaðu á ástaróð Sverris til unnustu sinnar: „Veit ég svo vel að þú heyrir mitt hjartalag“

Kristín Eva og Sverrir Mynd / Instagram

Söngvarinn Sverrir Bergmann gaf í dag út lagið Þig ég elska.

Lagið semur hann til unnustu sinnar, Kristínar Evu Geirsdóttur lögfræðings.

Sverrir semur lagið, og einnig texta ásamt Magnúsi Þór Sigmundssyni. Halldór Gunnar Fjallabróðir sér um útsetningu, upptökustjórn og þó nokkurn hljóðfæraleik. Sverrir teiknar síðan myndirnar í myndbandi lagsins.

Parið á von á sínu fyrsta barni í febrúar, og er von á stúlku.

Uppfært Kári er fundinn: Lögreglan lýsir eftir Kára

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Kára Siggeirssyni, 30 ára.

Talið er að hann sé klæddur í svarta úlpu og svartar buxur. Kári, sem er þéttvaxinn, 116 kg og 174 sm á hæð, er með blágræn augu og mjög stutt, ljós skollitað hár. Síðast er vitað um ferðir hans við Bríetartún um klukkan 18:00 í gærkvöldi, miðvikudag 25. september. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Kára eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000

Uppfært laugardag kl. 9

Kári er fundinn, heill á húfi. Þökkum veitta aðstoð.

Leikhússtjóra bárust tilkynningar um sex atvik kynferðislegrar áreitni

Leikhússtjóri Borgarleikhússins sagði frá því að henni hafi borist tilkynningar um sex atvik kynferðislegrar áreitni og ofbeldis af hálfu Atla Rafns Sigurðssonar og því hafi honum verið sagt upp störfum í desember.

Mál Atla Rafns Sigurðarsonar á hendur Borgarleikhúsinu og Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússtjóra Borgarleikhússins, var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en Atli stefndi leikhúsinu og Kristínu vegna uppsagnar hans í desember árið 2017.

Atli fer fram á 13 milljónir í bætur vegna þess sem hann telur ólögmæta uppsögn.

Atli var rekinn nokkrum dögum fyrir frumsýningu Medeu, þar sem hann átti að fara með eitt aðalhlutverkið, í kjölfar ásakana á hendur honum um kynferðislega áreitni.

Um sex ásakanir um kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi var að ræða.

Atli heldur því fram að hann hafi komið af fjöllum þegar honum var sagt upp og aldrei vitað hvaðan ásakanirnar komu. Í málflutningi sínum sagði hann að þetta hafa orðið til þess að hann gat ekki varið sig á nokkurn hátt.

Í umfjöllun Stundarinnar um málið kemur fram að Kristín hafi greint frá því fyrir Héraðsdómi í morgun að konurnar sem um ræðir hefðu leitað til hennar og þær sagt frá vanlíðan sinni vegna hegðunar Atla og að það hafi leitt til þess að ákveðið var að setja Atla upp störfum.

Nektarmyndir af látinni konu í dreifingu á samfélagsmiðlum: „Og þá kom smá áfall“

Bára Halldórsdóttir.

Bára Halldórsdóttir segir frá því í gær í Facebook-færslu að nektarmyndir hafi verið í dreifingu á samfélagsmiðlum í allt sumar. Myndunum er dreift undir þeim formerkjum að konan á myndinni sé Bára en svo er ekki.

„Myndirnar voru af síðu þar sem fullorðið fólk deilir ýmsu kynferðislegu milli sín og myndefnið var kona sem ég þekkti. En hún er ekki meðal okkar lengur,“ skrifar Bára Halldórsdóttir meðal annars í Facebook-færslu um nektarmyndir sem eru í dreifingu undir þeim formerkjum að um myndir af henni sé að ræða.

Bára segist ekki hafa kippt sér upp við að heyra að nektarmyndir væru í dreifingu sem sagðar voru af henni. Bára segist hins vegar hafa fengið áfall þegar hún áttaði sig á konan á myndunum væri látin.

„Ég bað um að fá myndirnar sendar. Jú ef þú horfir lauslega yfir en skoðar ekki almennilega mætti halda að þær væru af mér. Ekkert voða merkilegt, myndir af brjóstum og kynfærum og hjálpartækjum kynlífsins. Kom ekki almennilega fyrir mig hver þetta var svo ég spurði nokkra vini. Og þá kom smá áfall,“ skrifar Bára.

Bára biður fólk um að deila myndunum sem um ræðir ekki. „Ef þið rekist á myndirnar, ekki senda þær áfram. Ef þið fréttið af þeim látið vita að um látna manneskju er að ræða. Vinsamlegast hjálpið mér að stöðva þetta. Og reynið svo að búa til heim þar sem heimskuleg drusluskömmun er ekki kúl.“

Færslu Báru má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Engum útibúum lokað

Arion mun ekki loka útibúum í kjölfar skipulagsbreytinga.

Ekki stendur til að loka útibúum í kjölfar uppsagna um 100 starfsmanna Arion banka. Þetta staðfestir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðurmaður samskiptasviðs Arion banka, en um 20% uppsagnanna ná til útibúanna.

„Við höfum á undanförnum árum gert talsverðar breytingar á útibúanetinu okkar en þessar breytingar nú eru ekki af þeim toga,“ segir Haraldur.

Hann segir að þjónustan við almenna viðskiptavini verði óbreytt en til stendur að auka þjónustuna við fyrirtæki.

Aðspurður segir Haraldur kynjahlutföll frekar jöfn meðal þeirra sem missa vinnuna en starfsmenn bankans eru 65% konur og 35% karlar. Meðalaldur starfsmanna er 41,8 ár en Haraldur segir meðalaldur þeirra sem sagt verður upp lítillega hærri.

Hann segist ekki getað tjáð sig um það hvort um hreinar uppsagnir er að ræða en staðfestir að í langfelstum tilvikum muni starfsmenn láta af störfum í dag.

Sjá einnig: 100 manns sagt upp hjá Arion banka

Íslandsbanki segir upp 20 starfsmönnum

20 manns sagt upp hjá Íslandsbanka í dag.

Íslandsbanki sagði upp 20 starfsmönnum í dag. Starfsmönnum bankans barst tilkynning þess efnis fyrir skömmu. Í tölvupósti til starfsmanna segir að það séu alltaf  erfiðar aðgerðir þegar kveðja þurfi gott starfsfólk.

Almennar hagræðingaaðgerðir mun vera ástæðan. Bankinn hefur sagt upp 26 starfsmönnum í september. Uppsagnirnar ná þvert á fyrirtækið.

Í morgun var greint frá því að Arion banki hafi sagt upp um hundrað manns. 

Jacqu­es Chirac látinn

Fyrr­ver­andi for­seti Frakk­lands, Jacqu­es Chirac, er látinn 86 ára að aldri. Þessu er sagt frá á vef BBC.

Chirac var fyrst kos­inn for­seti árið 1995 og aft­ur sjö árum síðar. Seinna kjör­tíma­bil hans rann út árið 2007.

Áður hafði Chirac verið borg­ar­stjóri Par­ís­ar, frá árinu  1977 til ársins 1995. Chirac var dæmd­ur í tveggja ára skil­orðsbundið fang­elsi árið 2011 fyr­ir spill­ingu í starfi þegar hann var borgarstjóri.

Júlíana og Vala snúa aftur: „Getum við plís bara talað saman?“

|
|

Önnur þáttaröð af Venjulegu fólki hefst í Sjónvarp Símans Premium 16. október.

Fyrri þáttaröðin sem sýnd var í fyrra sló öll áhorfsmet hjá Símanum.

Það eru Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir sem fara með aðalhlutverkin, en um er að ræða gamansama þætti sem fjalla um dramað sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna.

Loftlagsverkfallið voru ein stærstu mótmæli sögunnar

Á föstudaginn 20. september fóru fram ein stærstu skipulögðu mótmæli sögunnar þegar yfir 4 milljónir manna í 185 löndum kröfðust aðgerða vegna loftslagsbreytinga. Greta Thunberg, sem leitt hefur baráttuna, byrjaði ein þessa bylgju skólaverkfalla fyrir utan sænska þingið fyrir um ári – sem síðan sem hefur vaxið með ótrúlegum hraða.

Þennan föstudag var ég stödd í París, Frakklandi – vöggu lýðræðisins. Rjómablíða lékk við Parísarbúa þennan daginn og þegar ég gekk að torginu Place de Nation þar sem ganga hófst tók við mögnuð sýn. Stór hópur franskra ungmenna hafði tekið sér sæti á styttunni eftir Jules Dalou sem vermir mitt torgið  – konunni sem stendur í vagni dregin af tveimur ljónum –  sem er orðin að tákni lýðveldisins um allan heim. Þar sungu ungmennin í kór: „við viljum aðgerðir í loftslagsmálum og við viljum þær núna“. Ég sá lýðræðið í verki og fann orkuna af slagkrafti fjöldans hríslast um mig.

Ungmennin voru í meirihluta og leiddu gönguna með ýmsum fjöldasöng og hrópum en fjöldinn allur af öðrum líka ungum (samanber höfund) sem gömlum tóku þátt. Áberandi voru samtökin Extintion Rebellion – en George Monbiot, pistlahöfundur á Guardian og loftslagsaktvísti er einn af helstu andlitum þeirra samtaka. Samtökin hafa það að markmiði að stuðla að breytingum á kerfinu vegna loftslagsmála með borgarlegri óhlýðni á friðsaman hátt. Milljónir manna eru þegar meðlimir í samtökunum sem eiga upptök sín í Bretlandi. Öll París virtist vera merkt með merkinu þeirra – á götum, ruslatunnum, veggjum, staurum o.s.frv. Á laugardaginn í París voru aftur mótmæli vegna loftslagsins en þau fóru aðeins úr böndnum, að sögn frétta, sökum þess að „gulu vestin“ svokölluðu sem hafa mótmælt um langt skeið á hverjum laugardegi í Frakklandi blönduðu sér í málið ásamt öðrum mótmælendahóp.

En eitt er víst að ungmennin eru ekki lengur ein í baráttunni fyrir róttækum aðgerðum í loftslagsmálum. Á fundi Sameinuðu þjóðanna í New York var fókusin sérstaklega loftslagsbreytingar, en einnig verður rætt um orkumál sem er nátengt. Hvort að leiðtogar heimsins fari nú að ranka allverulega við sér verður að koma í ljós, eftir þessa upprisu ungmenna og umhverfisverndarsinna og tilfinningaríka ræðu Gretu Thunberg á fundinum. Forsætisráðherra Íslands er með í þeim hóp sem þarf að ranka við sér, og ekki síður aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar, enda Ísland ekki að standa sig sérstaklega vel þegar kemur að árangri aðgerða í loftslagsmálum og ræða hennar á allsherjarþinginu var ekki til marks um neina róttækni eða stórkostlegar breytingar í þeim efnum.

Það liggur eitthvað í loftinu. Hvort það sé bylting er erfitt að segja, en ef mótmælin á föstudaginn er smjörþefurinn af því sem koma skal er þetta ekki eitt af þessum málum sem stjórnmálamenn geta hummað af sér. Skal engan undra. Ef við ætlum að taka mark á vísindum er það skylda okkar sem íbúa jarðar að gera það sem við getum, elska náttúruna, auðlindirnar og virða – og taka ábyrgð á þeim afleiðingum sem ofneysla okkar hefur valdið. Þar verður fólkið sem hefur boðið sig fram til að leiða og þjóna, að standa undir hlutverkinu –  leiða breytingar ella taka pokann sinn.

Stór mistök að falla fyrir giftum manni

Lífsreynslusaga úr Vikunni

Þegar ég sá Gunnar í fyrsta skipti á nýja vinnustaðnum mínum var ég ákveðin í næla í hann og gera hann að mínum. Ég var einhleyp og hafði engu að tapa. Ég sé það núna að þetta voru ein mestu mistök í mínum ástamálum. Að falla fyrir giftum manni í vinnunni. Þó að ég hafi síðar komist að breyttum aðstæðum hans, var ég svo vitlaus að hlusta ekki á orð hans og taka mark á hans tilfinningum. Ég veit núna hvað ég gerði rangt.

Ég var rétt búin að halda upp á 25 ára afmælið mitt með pompi og prakt þegar ég byrjaði að vinna í markaðsdeildinni í bankanum. Langþráður draumur var að rætast og ekki nóg með það, heldur var ég líka nýútskrifuð úr markaðsfræði frá Háskóla Íslands, þar sem ég nældi mér í fyrstu einkunn, þá bestu! Já, það var sko klappað fyrir mér þegar nafn mitt var lesið upp á sviðinu í útskriftinni í sjóðheitri Laugardalshöllinni í sumarbyrjun. Ég hefði varla getað verið stoltari af sjálfri mér. Satt að segja fannst mér leiðinlegast að það var enginn kærasti, enginn karlmaður í mínu lífi sem tók stoltur á móti mér með kossi þegar ég kom niður af sviðinu. En ég var orðin vön því að upplifa svona hluti í faðmi fjölskyldunnar.

Ég var búin að vera einhleyp í nokkur ár. Hafði þó farið á nokkur stefnumót sem skildu lítið eftir. Frekar mikil tímasóun að eyða kvöldstund með manni sem maður veit um leið og augu manns líta á hann að hann er ekki sá rétti. Þá hefði ég alveg eins getað verið heima og horft á Grey’s undir teppi í sófanum. Ég var dugleg á Netinu, var ekki feimin við að „adda“ og „póka“ á Facebook og þegar bekkjarsystir mín sýndi mér Taggalicious kynntist ég nokkrum strákum þar. En ekkert lá þar að baki annað en yfirborðskennt spjall sem alltaf fór út í vitleysu.

„Mig langaði í snertingu, að finna góða rakspíralykt og horfa í augu á góðum manni með ástarglampa í augum…“

Ég satt að segja var orðin leið á veruleikafirrtri ást á Netinu. Ég var einmana. Mig langaði í snertingu, að finna góða rakspíralykt og horfa í augu á góðum manni með ástarglampa í augum, ekki í gegnum tölvuskjá! Ég bjó ein í töff íbúð í 107 og fannst að nú væri minn tími kominn. Nýútskrifuð, ný vinna. Ég var á uppleið! Flestallar vinkonur mínar voru nánast harðgiftar frábærum mönnum sem báru þær á örmum sér og tilbáðu. Mig var farið að hungra í svoleiðis.

Ég hlakkaði því til að fara að vinna á mannmörgum vinnustað þar sem væru mögulega álitlegir kandídatar fyrir mig að skoða. Og þar var einn sem stal athygli minni. Gunnar.

Auðvitað var hann giftur!

Mér var tekið opnum örmum af stelpnahópi á mínum aldri í vinnunni þegar ég byrjaði og við borðuðum saman í mötuneytinu í hádeginu. Þetta byrjaði vel. Ég var komin inn í fína klíku sem var frábært á svona stórum vinnustað. Einn daginn mætti Gunnar til starfa eftir veikindafríi vegna íþróttameiðsla. Hann vann í deildinni minni og sat við skrifborð sjö metrum hjá mínu og var í beinni sjónlínu við mig. Einbeitingin hjá mér hvarf eins og dögg fyrir sólu um leið og hann mætti. Vá, hvað hann var fallegur! Hár og myndarlegur, íþróttamannslega vaxinn með ótrúlega blá augu. Hann var eins og skapaður fyrir mig!

Það fyrsta sem ég gerði þann dag þegar ég kom heim var að finna hann á Facebook. Ég var búin að hlakka allan daginn til þess. En viti menn, auðvitað var hann giftur! Ég skoðaði myndir af honum í útilegu þar sem hann var í hamingjukasti með lítilli og grannri konu, tveimur stálpuðum strákum sem augljóslega voru synir hans og stórum labrador-hundi. Opna pakka á jólunum. Drekkandi kokteil á strönd á Spáni. Gat nú verið!

Kjáninn ég hélt samt áfram að horfa á hann í vinnunni næstu vikurnar þegar tækifæri gafst. Ég gat ekki hætt að hugsa um hann. Mér fannst hann líka horfa til mín stundum og brosa. Æi, hvað átti ég að hugsa? Auðvitað átti ég að fara eftir því sem ég las í Vikunni fyrr á árinu: Ekki skíta þar sem þú étur. En það er alltaf hægt að vera vitur eftir á.

Fann neista á milli okkar

Ég var komin í níðþröngan, svartan sparikjól, í himinháa rauða hæla og dökka, síða hárið mitt varð Carmen-rúllum að bráð í tilefni kvöldsins. Ég var búin að taka vel á því í ræktinni og leit vel út.

Það var kominn október og ég var á leið á vetrarfagnað með vinnunni. Ég var búin að ákveða að ég ætlaði að tala við Gunnar um eitthvað annað en vinnutengt og heilla hann upp úr skónum. Ég vissi alveg að hann væri giftur og allt það. Öll skynsemi í mínum heila var rokin út í veður og vind. Þegar mig langaði í eitthvað, þá vildi ég fá það. Ég var orðin leið á að vera hrifin af honum úr fjarlægð. Við fórum fyrst í partí til yfirmanneskju okkar sem bjó í risastóru einbýlishúsi á Kjalarnesi. Hjartað í mér tók kipp þegar Gunnar mætti. Einn.

Ég skvetti í mig einu skoti ofan í nokkra kokteila og lagði til atlögu. Hann var ótrúlega ánægður að sjá mig. Ég bara vissi það. Hann er þessi feimna týpa. Fer voða lítið fyrir honum. Mér finnst það sjarmerandi. Hann var ólíkur öllum þessum Facebook-montrössum. Við töluðum heillengi saman, bara við tvö úti í horni. Ég fann neistann á milli okkar. Ekki leið á löngu þar til partíið var búið og stemningin á okkur Gunnari var þannig að við myndum fara samferða á skemmtistaðinn þar sem veislan átti að vera.

Við vorum orðin ágætlega hífuð og byrjuð að hella í glösin hvort fyrir annað. Við höguðum því þannig að við færum tvö ein í leigubíl. Vínið opnaði mig fyrir að segja honum sannleikann hvað mér þætti hann æðislegur. Á miðri akrein á Miklubrautinni sagði hann mér fréttir ofan í diskólag í útvarpinu. Hann væri að skilja við konuna sína.

Koss eftir krassandi fréttir

Mér leið á því augnabliki eins og að nú væri búið að bænheyra mig. Maðurinn sem ég var bálskotinn í var á lausu eftir allt saman. Auðvitað fyrir mig! Við kysstumst ástríðufullum kossi í leigubílnum. Ég var gjörsamlega í sjöunda himni. Við létum á engu bera fyrir framan vinnufélagana á Rúbín en undir niðri kraumaði löngun í hvort annað.

„Við kysstumst ástríðufullum kossi í leigubílnum.“

Við stöldruðum ekki lengi við í gleðskapnum. Við fórum heim til mín og kynntumst betur. Allt sem ég vildi segja og gera hafði ég loksins tækifæri til. Auðvitað lét ég varnarorð hans um að hann væri sko alls ekki á leiðinni í samband í nánustu framtíð, eftir 17 ára hjónaband, sem vind um eyru þjóta. Hann var minn! Það var vandræðalegt að sjá hann á næsta vinnudegi.

„Mér leið á því augnabliki eins og að nú væri búið að bænheyra mig. Maðurinn sem ég var bálskotin í var á lausu eftir allt saman.“

Dagarnir liðu og við töluðum ekkert saman um það sem gerðist. Brostum bara hvort til annars yfir þessa sjö metra. Ég var orðin svo hrifin að þegar ég keyrði í vinnuna skalf ég af spennu og hjartað í mér nánast snerti stýrið þegar það pumpaði. Á endanum varð ég að rjúfa þögnina. Þetta var orðið svo óþægilegt. Ég þakkaði honum fyrir síðast og hann, feiminn sem endranær, sagði að þetta hefði verið æðislegt. Ég skalf svo mikið að ég vissi ekki hvað ég átti að segja.

En þar sem við vorum að vinna saman var ég róleg og vissi að ég átti eftir að hitta hann aftur daginn eftir, og næsta og næsta. Ég vildi að það hefði verið svona gott eins og það hljómaði.

Spennan varð að vítahring

Næstu vikur voru tóm sæla. Augngotur hvort til annars í laumi frá skrifborðunum, sjóðheitar SMS-sendingar, tölvupóstar. Við höguðum því eins oft og við gátum þannig að við færum samferða upp í mötuneytið í lyftunni. Bara tvö ein. Þær 20 sekúndur voru okkar paradís á meðan lyftan fór á milli hæða og þeir kossar sem við áttum þar áttu eftir að endast út allan daginn. Þvílík spenna!

Allt í einu var ég farin að hunsa stelpurnar og sitja hjá honum. Ég fann að þær voru farnar að líta mig hornauga. En ég lét það ekkert á mig fá. Þetta leynilega samband okkar Gunnars einskorðaðist nánast eingöngu við vinnuna. Hann bjó langt frá höfuðborginni og var í öðru starfi þar eftir vinnu.

Ég var orðin dálítið þreytt á því að við gátum aldrei gert neitt saman. Og hann gæti nú alveg sent mér SMS svona við og við. Og þá kom hann aftur með áminninguna sem ég var búin að útiloka frá huganum. Hann væri ekki að fara í samband. Hann ætti skyldum að gegna gagnvart sonum sínum og hann vildi ekki gera þeim það að hitta aðrar konur strax.

Hann talaði lítið um konuna sína fyrrverandi, en ég vissi að skilnaður þeirra væri á viðkvæmu stigi og ég yrði að vera þolinmóð. Og já, ég var þolinmóð. Í marga mánuði. Ástfangin upp fyrir haus, horfandi á hann í vinnunni, hugsandi um hann ein heima í stóru íbúðinni minni, óskandi þess að hann væri hjá mér. Við hittumst í eitt skipti fyrir utan vinnuna, það var allt og sumt. Hann hringdi í mig þegar hann var í vinnuferð í London. Mér fannst það yndislegt. Stundum lofaði hann mér að við myndum hittast en þá kom eitthvað upp á hjá sonunum. Ég var orðin afbrýðisöm út í þá.

Þetta var farið að taka á mig og þegar ég keyrði heim úr vinnunni á hverjum degi fann ég svo mikinn söknuð í hans garð. Sérstaklega á föstudögum klukkan fimm þegar ég vissi að ég myndi ekki sjá hann í tvo heila daga. Þetta var orðinn vítahringur.

Ekki skíta þar sem þú étur

Ég varð að segja honum að þetta gengi ekki lengur svona. Ég væri ein taugahrúga út af honum, gæti ekki einbeitt mér í vinnunni, sæti grátandi ein heima að hugsa um hann, væri búin að útiloka mig frá stelpunum í vinnunni sem hefðu verið svo góðar við mig í upphafi og að þetta leynimakk okkar væri að skemma mig.

Ég var svo upptrekkt í vinnunni að ég fann að fólk var farið að líta á mig sem neikvæða og hundleiðinlega manneskju. Ég gat ekki talað um þetta „samband“ okkar við neinn, engan í vinnunni. Ef ég hefði ekki haft bróður minn til að gráta í veit ég ekki hvað ég hefði gert. Hann ráðlagði mér hvað eftir annað að hætta að hugsa um Gunnar en hvernig átti ég að geta það þegar hann sat beint fyrir framan mig átta tíma á dag, fimm daga vikunnar?

Það var eins og það tæki á Gunnar þegar ég sagðist ekki geta meir. Hann setti höndina fyrir hjartað á sér með dramatískum stælum. Það var bara ekkert annað í stöðunni. Hann vildi mig ekki. Það var bara svoleiðis. Hann var búinn að segja það margoft en ég bara hlustaði ekki. Það fóru margir mánuðir í að bíða eftir honum.

Ég var fegin þegar honum var sagt upp vegna niðurskurðar stuttu seinna. Þá gat ég loksins andað rólegar og einbeitt mér að vinnunni og að sjálfri mér. Þó að það hafi tekið tíma að komast yfir Gunnar var eins og stóru fargi væri lyft af mér. Nokkru síðar kynntist ég manni. Hann var að vinna í hinum enda borgarinnar. Ekki sjö metrum frá mér.

Stundum á maður bara að taka mark á tímaritum. Ekki skíta þar sem þú étur.

Freistandi og falleg eldhús í aðalhlutverki

Nýtt tölublað Húsa og híbýla er komið út. Veggfóður eru eitt heitasta trend ársins og því kíktum við í innlit til Kristjönu S. Williams í Suður-Frakklandi sem er sannkölluð veggfóðursveröld. Kristjana er þekkt fyrir hönnun sína á ævintýralegum veggfóðrum og prýðir hús hennar forsíðuna að þessu sinni.

Við kíktum í heimsókn til Guðrúnar Láru en hún býr ásamt fjölskyldu sinni í gamla Vesturbænum. Síðustu ár hefur hún tekið heimilið í gegn og fært það í litríkan búning og sýnum við fyrir og eftir myndir.

Katrín Ísfeld, innanhússarkitekt, hannaði smekklegt hús í Hafnarfirði þar sem þarfir íbúanna voru hafðar að leiðarljósi en töluverðar breytingar voru gerðar á húsinu. Hlýlegir litatónar og hugguleg stemning eru þar allsráðandi.

Við heimsóttum Margréti Einarsdóttur, keramiker, sem á gullfallegt og listrænt heimili í Vesturbænum þar sem franskir gluggar setja sterkan svip á heimilið ásamt náttúrulegum litatónum.

Innanhússarkitektar sýna okkur eldhús sem þeir hafa hannað og gefa lesendum góð ráð varðandi hönnun á slíkum rýmum.

Innanhússarkitektar gefa lesendum góð ráð varðandi hönnun á eldhúsrýmum.
Mynd / Unnur Magna

Nýjustu trendin er einnig að finna í blaðinu en við kíktum á stærstu hönnunarsýningu ársins, Maison et Objet í París.

Kærleikskeðjan heitir verkið sem prýðir póstkortið en Örn Tönsberg hannaði kortið. Örn er þekktur fyrir fallega veggjalist sem hefur sett sterkan svip á borgina.

Þetta og margt fleira í nýjasta Hús og híbýli.

Tryggðu þér áskrift að Hús og Híbýli í vefverslun

KALDA-skór á tískupalli Rihönnu

|
|

Íslenska skómerkið KALDA tók þátt í tískusýningu Rihönnu á dögunum.

Tónlistarkonan og hönnuðurinn Rihanna frumsýndi nýja Savage x Fenty-nærfatalínu á tískuvikunni í New York fyrr í mánuðinum. Sýningin hefur fengið mikið viðbrögð og þótti einstaklega flott.

Mikil leynd ríkti yfir sýningunni og voru áhorfendur beðnir um að skilja símana eftir við innganginn. En þegar myndir og myndbönd frá sýningunni litu dagsins ljós hafa eflaust einhverjir tískuunnendur tekið eftir að íslenska hönnun mátti sjá á sviðinu.

Um skó frá íslenska merkinu Kalda er að ræða. Tvær skótýpur mátti sjá á sviðinu, það er Alba og Simon mini.

Stílistinn Jacob K sá um að stílisera sýninguna.

https://www.instagram.com/p/B2zehBsA4mv/

https://www.instagram.com/p/B2kFeC6FQe4/

Fjarðarpósturinn verður að Hafnfirðingur

Olga Björt Þórðardóttir eigandi og útgefandi Fjarðarpóstsins, sem kemur út hálfsmánaðarlega í Hafnarfirði, hefur nú breytt um nafn á blaðinu sem frá og með deginum í dag heitir Hafnfirðingur.

„Nýja nafnið greinir líka blaðið mitt meira frá hinum bæjarblaðinu og fólk dregur mögulega úr því að spyrja hvort ég sé ljósmyndari frá Fjarðarfréttum,“ segir Olga Björt, sem segist hafa fengið mikla hvatningu frá ótrúlega stórum hópi fólks, aðallega Hafnfirðingum, um að halda útgáfunni áfram, en hún tók við rekstri blaðsins síðustu áramót.

„Mín einlæga ósk er sú að hægt verði að ná sátt um þetta sterka og lýsandi nafn og að ég geti farið að verja dýrmætri orku minni í að vinna vinnuna mína í þágu lesenda, auglýsenda og annarra Hafnfirðinga,“ segir Olga Björt.

Hönnun / Gunnar Júlíusson

Facebook-síða og vefsíðan hafnfirdingur.is verða virkar í dag, en nýjasta blaðið má lesa hér.

Brynjar gekk út þegar Áslaug mætti

Brynjar Níelsson yfirgaf fundinn þegar dómsmálaráðherra mætti.

Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, ræðir mál­ ríkis­lög­reglu­stjóra og situr fyrir svörum á fundi með stjórn­skipunar- og eftir­lits­nefnd Al­þingis. Þór­hild­ur Sunna Ævars­dótt­ir, þingmaður Pírata og formaður nefnd­ar­inn­ar, kallaði eftir fundinum.

Fundurinn hófst klukkan níu og er lokaður. Um stund­ar­fjórðungi eftir að fundurinn hófst var Áslaug kölluð inn en samkvæmt frétt á mbl.is yfirgaf Brynj­ar Ní­els­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, fundinn um leið og Áslaug mætti.

Uppfært klukkan 10.22

Í samtali við Vísi sagði Brynjar að gjörningurinn hafi ekkert með Áslaugu að gera. „Þetta hefur ekkert með ráðherrann að gera, þó mönnum þætti það mjög skemmtileg frétt,“ sagði Brynjar.

Þá sagði Brynjar að hafa yfirgefið fundinn í mótmælaskyni þar sem Þórhildur Sunna, formaður nefndarinnar, hafi ákveðið að halda fund af þessu tagi „án þess að tala við kóng né prest“.

Sjá einnig: Haraldur áfram ríkislögreglustjóri

Uppfært Anna er fundin: Lögreglan lýsir eftir Önnu Helgu

|
Mynd / Hákon Davíð Björnsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Önnu Helgu Pétursdóttur, 63 ára, en síðast er vitað um ferðir hennar í nágrenni Holtagarða í Reykjavík í gærmorgun.

Anna Helga er grannvaxin, 165 sm á hæð og með stutt, grátt hár. Hún var klædd í dökkbláar, víðar gallabuxur, brúna gönguskó og grænan/brúnan jakka. Anna Helga, sem notar gleraugu, gæti verið með loðhúfu á höfði.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Önnu Helgu, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112, en upplýsingum fá einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Uppfært laugardag kl. 9:

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir aðstoð fjölmiðla um að auglýsa á sínum miðlum að lögregla væri að óska eftir aðstoð við að hafa upp á Önnu Helgu Pétursdóttur. Hér með upplýsist að Anna er fundin heil á húfi.

Ykkur til frekari upplýsinga þá óskaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu eftir aðstoð björgunarsveita Landsbjagar um klukkan 19:00 í kvöld varðandi leitina að Önnu. Leitað var á nokkrum svæðum sem lögregla hafði aflað upplýsinga um að hún gæti haldið sig á. Anna fannst síðan heil á húfi laust upp úr miðnætti heil á húfi eins og áður segir á einu þeirra leitarsvæða sem lagt var upp með að leitað yrði á. Ekki verða veittar frekari upplýsingar um leitina.

Að lokum þakkar lögreglan veitta aðstoð fjölmiðla í máli þessu.

Raddir