Fimmtudagur 30. janúar, 2025
1.8 C
Reykjavik

Erfiðlega gengur að fá eignir afhentar í nothæfu ástandi

Upphaflega ætlaði flugfélagið WOW 2 að fara í jómfrúarflugið í byrjun október en erfiðlega gengur að fá eignir úr þrotabúi WOW afhentar í góðu ástandi.

WOW 2 fer í fyrsta flugið um miðjan októ­ber. Þetta kemur fram í frétt ViðskiptaMoggans. Þar segir að ferlið gangi hægar en áætlað var. Upphaflega átti að fara í fyrsta flugið í byrjun október.

Það er at­hafna­kon­an Michele Roosevelt Edw­ards, stjórn­ar­formaður US Aerospace Associa­tes LLC, sem stend­ur að end­ur­reisn WOW.

Michele festi kaup á flug­tengd­um eign­um úr þrota­búi flug­fé­lags­ins en erfiðlega mun hafa gengið að fá þær eignir afhentar í nothæfu ástandi. Sömuleiðis hefur lénið wow.is og wowair.com ekki fengist afhent samkvæmt heimildum ViðskiptaMoggans.

Sjá einnig: WOW air aftur í loftið

Lampi sem tekur hugann til Parísar

Inga Sempé er franskur hönnuður, búsett í París þar sem hún jafnframt starfar. Hún útskrifaðist frá Ecole Nationale Superieure de Création Industrielle (ENSCI) í París árið 1993 og hlaut jafnframt skólastyrk til áframhaldandi náms við Villa Medici, Académie de France in Rome. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, meðal annars Red Dot hönnunarverðlaunin árið 2007.

Í sumar hóf danski hönnunarrisinn HAY sölu á nýjum lömpum sem Inga hannaði en lamparnir eru verðugur fulltrúi samtímahönnunar ásamt því að vera með ljóðræna skírskotun.

Lampinn minnir á litríkar regnhlífar Parísarborgar.

Lamparnir minna um margt á litríkar regnhlífar sem skjóta gjarnan upp kollinum á götum Parísarborgar þegar rignir.

Mynd/ HAY

Lampinn sjálfur er gerður úr brassi með mattri áferð en skermurinn er úr plíseruðu bómullarefni. Skermarnir eru fáanlegir í sex mismunandi litum og koma lamparnir einnig í tveimur mismunandi stærðum. Lýsingin er sérstaklega notaleg en ljósdeyfir er á lampanum.

Birtan er sérlega notaleg en ljósdeyfir er á lampanum.

Okkur á Húsum og híbýlum finnst lampinn sérlega skemmtilegur og tekur hann hugann beint til Parísar.

Epal er söluaðili HAY á Íslandi og hægt er að sérpanta lampana hjá þeim. 

Meginstreymi með nýtt lag

Hljómsveitin Meginstreymi var að senda frá sér annað lag sitt, Í huga þér.

Á síðasta ári sendi sveitin frá sér lagið Það sem enginn vita má, sem kom út í takmörkuðu, tölusettu upplagi á 45rpm 7″ vínyl, en undanfarin ár hefur Meginstreymi spilað á dansleikjum, árshátíðum og þorrablótum við góðan orðstír um land allt. Í huga þér er komið á allar helstu streymisveitur og á Albumm.is.

Íslenskir rithöfundar ræða um hefðina, nútímann, ímyndunarafl, glæpasögur og ofurhetjur

|
Auður Ava

Auður Ava Ólafsdóttir, Kristín Ómarsdóttir, Ragnar Jónasson og Sigrún Eldjárn eru fulltrúar Íslands á bókamessunni sem fram fer í Gautaborg næstu helgi, eða 26.- 29. september.

Þau ræða meðal annars um hefðina og nútímann, ímyndunarafl og ljóðrænu í tungumálinu, nýjar glæpasögur og ofurhetjuna Viktoríu.

Þegar gamalt mætir nýju. Auður Ava í aðaldagskránni

Á laugardeginum ræðir Auður Ava Ólafsdóttir, handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, við rithöfundana Dörte Hansen frá Þýskalandi og Elinu Olofsson frá Svíþjóð um það þegar hefðin mætir nútímanum og þegar hið framsækna mætir því íhaldssama út frá nýjustu bókum þeirra. Yfirskriftin er När gammalt möter nytt og verður spjallinu stýrt af dramatúrgnum Anneli Dufva.

Kristín í ljóðadagskránni Rum för poesi

Kristín Ómarsdóttir les upp ljóð sín í ljóðadagskránni Rum för poesi  á laugardeginum en hún er tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir ljóðabók sína Kóngulær í sýningargluggum. Margir íslenskir höfundar hafa komið fram í Rum för poesi á liðnum árum en dagskránni er stýrt af Per Bergström sem rekur sænsku bókaútgáfuna Rámus.

Ljóðrænt tungumál og ímyndunaraflið 

Á laugardagsmorgninum klukkan 11.00-11.30 taka Auður Ava og Kristín að auki þátt í viðburði sem sænski þýðandinn John Swedenmark stýrir í Världskulturmuséet í Gautaborg með yfirskriftinni Att skapa och skaka om världen. Þar verður rætt um ímyndunaraflið og hið takmarkalausa ljóðræna tungumál og lesa höfundarnir úr verkum sínum. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Litteraturhuset í Gautaborg, Sendiráð Íslands í Stokkhólmi og Föreningen Norden.

Ragnar í glæpasagnadagskránni Crimetime

Crimetime er glæpasagnadagskrá sem er nú hluti af Gautaborgarmessunni annað árið í röð og verður Ragnar Jónasson fulltrúi Íslands þar. Hann ræðir við Lottu Olsson um verk sín undir yfirskriftinni Möt Islands nya krimstjärna!. Ragnar nýtur mikilla vinsælda meðal sænskra lesenda, en bók hans Dimma er á lista yfir bók ársins þar í landi og var söluhæst á Akademibokhandeln list í þrjár vikur í apríl. Einnig er Drungi komin út í sænskri þýðingu og er Modernista útgefandi bókanna í Svíþjóð.

Íslenski básinn

Dagskrá fyrir unga lesendur og íslenskar fjölskyldur í Gautaborg

Sigrún Eldjárn kemur fram í barnadagskránni Barnsalongen á sunnudeginum, en hún er tilnefnd til barna- og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs. Sigrún segir þar frá bókum sínum um Sigurfljóð sem hún skrifar bæði og myndskreytir. Auk þess verður hún í viðburði fyrir Íslendinga búsetta í Gautaborg á sunnudeginum kl. 10. 30 í Språkcentrum i miðborg Gautaborgar. Það er íslenski menningarklúbburinn, undir stjórn íslenska konsúlsins i Gautaborg, sem hefur umsjón með viðburðinum í samvinnu við íslenska móðurmálskennarann þar í borg.

Íslenskar bækur á básnum

Miðstöð íslenskra bókmennta heldur utan um dagskrá íslensku höfundanna í samráði við stjórnendur messunnar. Íslenski básinn á bókamessunni er í samstarfi við Íslandsstofu en þar eru bækur íslenskra höfunda kynntar og seldar, margar hverjar í sænskum þýðingum og það er Félag íslenskra bókaútgefenda sem hefur umsjón með því.

Íslenski básinn er númer C03:39 og er hönnun hans í höndum HAF studio .

Sjá hér heildardagskrá bókamessunnar í Gautaborg 2019.

Þrjár konur slösuðust á tónleikum Of Monsters and Men um helgina

Of Monsters and Men spiluðu á Life is Beautiful um helgina.

Myndavél féll um tíu metra inn í hóp áhorfenda á tónleikum Of Monsters and Men um helgina.

Þrjár konur slösuðust á tónleikum íslensku hljómsveitarinnar Of Monsters and Men um helgina þegar myndavél féll um tíu metra inn í áhorfendahópinn. Atvikið átti sér stað á tónleikahátíðinni Life is Beautiful í Las Vegas á laugardaginn.

Myndavélin sem féll á konurnar mun hafa vegið um níu kíló. Þessu er sagt frá á vef TMZ. Þar segir að tvær kvennanna þriggja hafi verið fluttar á sjúkrahús til aðhlynningar. Þær hafa báðar verið útskrifaðar af spítala.

Talsmaður hátíðarinnar hefur greint frá því að rannsókn á atvikuni standi nú yfir.

Þess má geta að þetta er annað árið í röð sem tónleikagestir slasast á Life is Beautiful hátíðinni. Í fyrra slösuðust tveir tónleikagestir þegar flugeldum var skotið inn í hóp fólks.

Fataleiga Ganni með þann tilgang að lágmarka skaðleg umhverfisáhrif

|
|Sem dæmi þá er hægt að leigja þennan pallíettukjól í viku á um 11.000 krónur. Kjóllinn kostar rúmar 66.000 krónur nýr úti í búð.

Núna er hægt að leigja flíkur frá danska tískumerkinu Ganni.

Skaðleg áhrif tískuiðnaðarins á umhverfið hafa verið mikið í umræðunni undanfarið. Verkefnið Ganni Repeat er svar danska tískumerkisins Ganni við umræðunni og breyttum tímum.

Tilgangur verkefnisins er að lágmarka skaðleg umhverfisáhrif með því að bjóða neytendum upp á að leigja flíkur, ýmist í eina viku eða þrjár vikur. Að tímabilinu loknu er flíkinni svo skilað og Ganni sér um að þvo hana.

„Vissir þú að um 39,900 tonn af textílefni enda í landfyllingum eða í brennslu á ári hverju í Danmörku,“ segir á vef Ganni um verkefnið.

Sem dæmi þá er hægt að leigja þennan pallíettukjól í viku á um 11.000 krónur. Kjóllinn kostar rúmar 66.000 krónur nýr úti í búð.

Fataleiga Ganni verður til að byrja með bara í boði í Ganni-verslunum í Danmörku. Ef verkefnið gengur vel verða fataleigur opnaðar í öllum Ganni-verslunum er fram kemur í meðfylgjandi Instagram-færslu.

„Ég fer á barinn og prjóna þar, ekki til að fá mér drykk“

Tóta van Helzing er tuttugu og átta ára Reykjavíkurmær sem hefur prjónað nánast síðan hún man eftir sér og hún prjónar engar venjulegar peysur. Hún leggur jafnmikið upp úr því að peysurnar höfði til augans eins og snertiskynsins og blandar saman ólíkum garntegundum með einstæðum árangri.

„Ég hef alltaf verið mikið að fikta við prjónaskap,“ svarar Tóta aðspurð hvað hafi leitt hana út í peysuframleiðsluna.

Það var í gegnum vinnuna við sjónvarpsþættina Black Mirror sem peysugerð Tótu tók nýja stefnu og fór á flug.

„Í þættinum sem ég var að vinna við átti ein persónan að vera blind,“ segir hún. „Við vorum að búa til barnaherbergi fyrir blindan karakter og þurftum að tala við Blindrafélagið og setja okkur inn í það hvernig það væri að ala upp barn sem væri blint. Við römmuðum inn efni með alls kyns áferð og mynstrum og mér fannst þetta svo skemmtileg pæling og kveikti á því að efnið í peysunum ætti ekki bara að vera fyrir augað heldur líka fyrir snertingu. Núna eru allar peysurnar mínar samsettar úr mismunandi garni með mismunandi áferð. Það getur stundum verið vandræðalegt þegar ég er í svoleiðis peysu og fólk fer að káfa á manni til að finna áferðina en ég læt mig hafa það vegna þess að mér finnst það skipta máli. Ég þyrfti helst að gera peysur sem væru líka fyrir heyrnina,“ bætir hún við og hlær. „Hafa eitthvert hljóð í þeim.“

Garn gerir svo mikið fyrir mig

Síðan þessi hugmynd um mikilvægi áferðarinnar kviknaði hefur Tóta prjónað peysur úr alls kyns mismunandi efnum og hún segist vera orðin alveg föst í því að hver flík verði að hafa margs konar ólíka áferð.

„Það er rosafyndið hvað garn gerir mikið fyrir mig og mér finnst alltaf jafngaman að kaupa garn.“

„Ég er alltaf að kaupa garn með mismunandi áferð þannig að nú er ég komin með mjög stóran lager,“ segir hún. „Það er rosafyndið hvað garn gerir mikið fyrir mig og mér finnst alltaf jafngaman að kaupa garn. Ég kaupi allt garn á nytjamörkuðum eða fæ afganga hjá öðrum, endurvinn það og tek alltaf hespurnar sem ég kaupi eða fæ gefins og vind þær upp á nýtt í hnykla,“ segir Tóta sem prjónar hvar og hvenær sem er.

„Ég fer á barinn og prjóna þar, ekki til að fá mér drykk, ég sit bara og drekk kaffi og prjóna. Stundum fer ég af því að ég nenni ekki að vera að ein heima hjá mér að prjóna, þarf að komast út og vera innan um fólk.“

Lestu viðtalið við Tótu í heild sinni í 37. tölublaði.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vefverslun

Myndir / Hallur Karlsson, Julie Rowland, Eva Schram og Valgerður Anna Einarsdóttir 

Skýringin á skrítna göngulaginu komin

Göngulag Gwyneth Paltrow á Emmy-hátíðinni hefur vakið mikla athygli.

Leikkonan Gwyneth Paltrow stal senunni á Emmy-verðlaunahátíðinni á mánudaginn þegar hún gekk inn á sviðið til að afhenda Jodie Comer verðlaun fyrir hlutverk sitt í þáttunum Killing Eve. Það tók Paltrow óratíma að komast yfir sviðið að hljóðnemanum og þetta vakti upp margar spurningar hjá netverjum.

En skýringin á þessu furðulega göngulagi er komin. Kjóllinn sem Paltrow klæddist mun hafa verið sökudólgurinn.

Stílisti Paltrow, Elizabeth Saltzman, greindi frá því í viðtali við The Hollywood Reporter að Valentino-kjóllinn sem hún valdi fyrir Paltrow þetta kvöldið er frá árinu 1963. Hún sagði að í þá daga hafi ekki verið algengt að hafa klauf aftan á síðum pilsum. Þess vegna átti Paltrow erfitt með að hreyfa sig eðlilega.

Hún segir ekki hafa komið til greina að breyta kjólnum fyrir Emmy-hátíðina „Til að halda kjólnum ósviknum þá vildi ég ekki breyta hönnun Valentinos,“ sagði Saltzman.

Eftirför á Vesturlandsvegi – Ökumaður veittist að lögreglumönnum

|
|

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við aðstoðarbeiðni rétt fyrir hádegi í dag.

Lögreglan á Vesturlandi hafði veitt bifreið athygli sem var ekið á miklum hraða við Hvalfjarðargöng í átt að borginni.

Ökumaður virti ekki ítrekuð stöðvunarmerki lögreglu og var talinn valda mikilli hættu, enda var bifreiðin mæld á rúmlega 200 km/klst hraða þegar mest var.

Lögð var naglamotta í veg fyrir bifreiðina og var hún loks stöðvuð í Mosfellsbæ. Þar veittist ökumaðurinn að lögreglumönnum og var handtekinn.

Málið er í rannsókn og ekki hægt að veita frekari upplýsingar um það að svo stöddu.

Íslenska efnisveitan Ísflix mun líta dagsins ljós 1. nóvember

Þeir Ingvi Hrafn Jónsson og Jón Kristinn Snæhólm vinna nú hörðum höndum að því að fullkomna efnisveituna Ísflix.

Íslenska efnisveitan Ísflix mun líta dagsins ljós 1. nóvember. Þar verður áhersla lögð á íslenska dagskrárgerð og verður efnið aðgengilegt í gegnum smáforrit sem verið er að leggja lokahönd á. Þetta kemur fram í frétt Vísis.

Fjölmiðlamennirnar Ingvi Hrafn Jónsson og Jón Kristinn Snæhólm eru mennirnir á bak við Ísflix.

Ísflix mun jafnframt bjóða upp á beinar útsendingar. Til dæmis verður þjóðmálaþáttur í beinni útsendingu alla sunnudaga.

„Þetta verður borgaraleg efnisveita. Svona aðeins til hægri,“ sagði Jón Kristinn í samtali við Vísi.

Haraldur áfram ríkislögreglustjóri

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Mynd / Aldís Pálsdóttir

Harald Johannessen verður áfram ríkislögreglustjóri en mál hans er til skoðunar. Meiri­hluti lög­reglu­stjóra á land­inu bera ekki traust til Har­ald­ar Johann­essen rík­is­lög­reglu­stjóra.

Landssamband lögreglumanna samþykkti vantraust á Harald Johannessen, ríkislögreglustjóra, í gær. Átta af níu lögreglustjórum á landinu ekki bera traust til Haraldar.

Mál Haraldar var tekið fyrir á fundir ríkisstjórnar í morgun. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, sagði eftir fundinn að málið væri í vinnslu og að Haraldur sæti áfram sem ríkislögreglustjóri enn um sinn.

Áslaug sagði þá ætla að gefa sér nokkrar vikur til að hugsa málið. Hún gerði ráð fyrir að vinnu við skipu­lags­breyt­ing­ar inn­an lög­regl­unn­ar verði lokið inn­an ör­fárra vikna.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg

Jólin í september

Það er 91 dagur til jóla og í þessari viku mun Garðlist skreyta húsið mitt með jólaseríum sem eiga að sjást frá Tunglinu. Konan mín hefur ákveðnar efasemdir um það að skreyta svona snemma, en það hefur um nokkuð langt árabil verið sérstakt markmið hjá mér að vera fyrstur með jólaskreytingar. Síðastliðin ár hefur það gengið ágætlega, en kapítalistasvínin í Costco skákuðu mér þó þetta árið. IKEA á aftur á móti ekki breik í mig, ef að líkum lætur.

Eins og gefur að skilja, þá er ég dálítið jólabarn. Ástæðan er ekki bara sú að ég elska að fá pakka og slafra í mig hálfmánum (sem vegur þó nokkuð þungt í þessu öllu saman!). Ástæðan er heldur birtan, sem fylgir jólunum. Á mánudaginn var haustjafndægur. Birtustundum mun nú fækka hratt, allt til vetrarsólstaðna þann 21. desember. Þá snýst þetta aftur við og birtan nær yfirhöndinni á vorjafndægri, þann 20. mars. Þetta myrkur fer í mig. Ég er með birtulampa í vinnunni, sem ég hef kveikt á yfir dimmustu dagana. Og þegar dætur mínar fara í vetrarfrí í janúar/febrúar, þá reyni ég að komast í burtu á suðlægar slóðir. Snemmbærar jólaskreytingar eru hluti af þessu öllu saman. Með því að lýsa upp skammdegið gerir maður allt þetta endalausa myrkur aðeins bærilegra.

En ég hef auðvitað ekki alltaf verið neitt brjálað jólabarn. Þó var það þannig, að þegar ég var lítill strákur gaf föðuramma mín mér jólasveinabúning, sem hún hafði saumað á mig, og gæruskinn sem hafði verið sniðið eins og skegg. Ég elskaði þennan búning meira en lífið sjálft og var í honum flesta daga aðventunnar. Ég lét að sjálfsögðu ekki nægja að vera bara í honum heima, heldur tók ég, 5-6 ára, stundum strætó neðan úr Breiðholti í Skeifuna til þess að spóka mig í gallanum í verslun Hagkaupa. Starfsfólk verslunarinnar tók mér alla jafna vel og lét mig hafa stútfullan poka af eplum, sem ég mátti svo gefa viðskiptavinum í jólaösinni. Einu sinni rakst ég samt á aðra jólasveina, sem þar voru við störf, sem kærðu sig ekkert sérstaklega um liðsaukann og tóku mig á eintal bakatil í búðinni. Heimsóknunum fækkaði eftir það.

Eins og hjá flestum unglingum, þá skipuðu jólin ekkert sérstaklega stóran sess í mínu lífi á því árabili. Mér fannst jólaveislurnar ekkert sérstaklega skemmtilegar og þetta var sá tími ársins sem maður umgekkst vini sína minna en ella. Allur þessi fjölskyldutími gerði það líka erfiðara að vera gera einhvern óskunda, eins og mér og mínum fannst svo spennandi á þessum árum.

Eftir að ég varð pabbi byrjuðu jólin aftur að vera skemmtileg. Sem faðir fær maður tækifæri til þessa að upplifa jólin í allri sinni dýrð í gegnum börnin sín, sem spennast upp í æsingnum og geta vart á sér heilum tekið við gerð óskalista og jólaföndurs. Og það eru ekki síst dætur mínar sem fagna snemmbúnum jólaljósum utan á húsinu. Þeim finnst líka pínu sniðugt að pabbi þeirra sé jólanötter, þó svo að þær finni líka til með mömmu sinni, sem hárreytir sig alltaf smávegis frá september fram að fyrsta í aðventu.

Gleðileg jól. Í september.

Aðalsmerki góðs yfirmanns

„Átti ég að starfa með manni sem mig langaði ekki að starfa með?“

Svo spurði Sólveig Anna Jónsdóttir í nýlegri yfirlýsingu til fjölmiðla og svar mitt við þeirri spurningu er: „Já, þú, rétt eins og ég og allir aðrir Íslendingar á vinnumarkaði, áttir að láta þig hafa það vinna með einhverjum sem þig langaði ekki nokkurn skapaðan hlut að vinna með.“

Það er einfaldlega svo að okkur líkar misjafnlega við fólk og allir hafa einhvern tíma staðið í þeim sporum að einhver samstarfsmaður fellur þeim ekki í geð. Sé sá hinn sami hæfur í starfi, kurteis og nokkuð dagfarsprúður verðum við bara að láta okkur hafa það. Að auki eigum við sem fullorðið fólk að gefa öllum tækifæri þegar við flytjum okkur milli vinnustaða og það enn frekar séum við í yfirmannstöðu.

Mitt mat er að aðalsmerki góðs yfirmanns sé að hann vinnur sín skítverk sjálfur. Þess vegna treystir hann ekki á að einhver annar reki starfsmenn fyrir sig jafnvel þótt hann hafi látið viðkomandi vita, tvisvar sinnum, að hann ætli sér að skipta út fólki. Mér hefur líka alltaf fundist meira til um þann sem hefur manndóm í sér til að standa augliti til auglitis við starfsfólk sitt, rétta því uppsagnarbréfið og skýra ástæðurnar hreinskilnislega.

Það er ábyrgðarhluti að segja fólki upp. Flestum er mikið áfall að fá uppsagnarbréf og oft setur það afkomu fólks í hættu. Uppsögn er einnig ennþá talinn svartur blettur á ferilskránni, til marks um að viðkomandi hafi ekki staðið sig eða verið á einhvern hátt óhæfur. Orðspor þess sem fær slíkt bréf í hendur er laskað og stundum þarf fólk tíma til að stappa í sig stálinu að nýju og fá kjark til að halda af stað í atvinnuleit. Stéttarfélögin voru stofnuð til að standa vörð um réttindi launafólks, styðja það gegn ósvífnum atvinnurekendum sem því miður eiga það til að segja manneskju upp bara af því þá langar ekki að vinna með þeim. Ábyrgðarleysið er algert og geðþóttaákvarðanir af þessu tagi bera vott um litla samlíðan með meðborgurum sínum.

„Stéttarfélögin voru stofnuð til að standa vörð um réttindi launafólks …“

Nú er ég ekki að tala um að halda beri fólki í vinnu sem ekki stendur sig né heldur að það sé óeðlilegt að nýir yfirmenn á vinnustað skipi sjálfir sína meðstjórnendur. En enginn eftirlætur fyrirrennara sínum að hreinsa til.

Lykilorðin hér eru virðing fyrir öðrum og skilningur á því að starfið er hluti af sjálfsmynd mannsins. Það moldviðri sem nú gengur yfir Eflingu stéttarfélag snýst að mínu mati um þetta. Hvort fjárkröfur fyrrum starfsmanna séu réttlátar eður ei er vafamál en það er ekki öllum gefið að vera góðir yfirmenn og þar ættu stéttarfélög að ganga fram með góðu fordæmi.

Leikur sér með „autotune“ á sérstakan hátt

Tónlistarkonan Sigfríð Rut Gyrðisdóttir eða Frid var að gefa frá sér nýtt lag en það ber heitið I Won’t. Það er fyrsta lagið sem hún gefur út af breiðskífu sem hún vinnur nú að.

Á þessu lagi leikur hún sér með „autotune“ en hún beitir því á afar sérstakan hátt. Hljóðhemur Frid er einstaklega þéttur og skemmtilegur og er það greinilegt að hún er búin að nostra við hvert smáatriði.

Frid byrjaði að gefa út tónlist undir lok síðasta árs en þá gaf hún út smáskífuna If you listen sem inniheldur sex lög.

Tónlistarstíl hennar má lýsa sem draumkenndri raftónlist með R&B-ívafi en hún dregur innblástur sinn frá listamönnum á borð við FKA Twigs, Banks og Bon Iver svo eitthvað sé nefnt.

Frid kemur fram á Iceland Airwaves í ár.

Sex ráð Ernu Kristínar til að passa í jólakjólinn: „Sjálf ætla ég að byrja snemma að undirbúa mig“

|
Erna Kristín Stefánsdóttir Mynd / Hallur Karlsson

Erna Kristín Stefánsdóttir aktívisti um jákvæða líkamsímynd og guðfræðingur, er með um 17 þúsund fylgjendur á Instagram-síðu sinni, Ernuland.

Í nýjustu færslu sinni deilir hún sex skotheldum ráðum til að komast í kjólinn fyrir jólin.

„Styttist í jólin og eins og þið vitið þá fylgir því herferð þar sem við erum mötuð á matarsamviskubiti og skyndilausnum hvernig best er að grennast til að komast í „kjólinn fyrir jólin“ ……eins gott að byrja strax ekki satt, verðleikar okkar eru í húfi gott fólk. Sjálf ætla ég að byrja snemma að undirbúa mig!!“

Og hér eru skrefin sex sem þarf að fylgja:
Fyrsta skref: Ég finn hinn fullkomna jólakjól.
Skref tvö: Ég passa að hann sé sléttur og straujaður fyrir jólin.
Skref þrjú: Ég stilli klukkuna mína á 16:00 á aðfangadag, gott að vera tímalega fyrir næstu skref.
Skref fjögur: Ég byrja á því að fara í sokkabuxurnar og haldarann (sem oftast nær er íþróttatoppur frá því ég var 17 ára).
Skref fimm: (Þetta er mikilvægasta skrefið, gott að highlighta það vel ) Ég fer í kjólinn í þeirri stærð sem passar mér.
Skref sex: Ég dansa inn í jólin á réttum tíma í hinum fullkomna kjól, sem ég valdi í þeirri stærð sem ég passa í og akkurat þannig krakkar, komist þið í fjandans kjólinn fyrir jólin

„Svo bara njóta og elska sjálfan sig og muna, þú kemst í kjólinn fyrir jólin, þetta snýst bara um að kaupa kjólinn í réttri stærð.“

Nú þegar hafa yfir 800 manns látið sér líka við færsluna og er líklegt að allir sem vilja muni passa í jólakjólinn sé þessum einföldu ráðum fylgt.

View this post on Instagram

Styttist í jólin & eins og þið vitið þá fylgir því herferð þar sem við erum mötuð á matarsamviskubiti & skyndilausnum hvernig best er að grennast til að komast í “kjólinn fyrir jólin” ……einsgott að byrja strax ekki satt, verðleikar okkar eru í húfi gott fólk 🙄🤦🏼‍♀️ Sjálf ætla èg að byrja snemma að undirbúa mig!!⁣💃🏼 ⁣ Fyrsta skref: Ég finn hinn fullkomna jólakjól⁣ Skref tvö: Ég passa að hann sé sléttur og straujaður fyrir jólin⁣ Skref þrjú: Ég stilli klukkuna mína á 16:00 á aðfangadag, gott að vera tímalega fyrir næstu skref.⁣ Skref fjögur: Ég byrja á því að fara í sokkabuxurnar og haldarann ( sem oftast nær er íþróttatoppur frá því ég var 17ára )⁣ Skref fimm: ( þetta er mikilvægasta skrefið, gott að highlighta það vel ) : Ég fer í kjólinn í þeirri stærð sem passar mér.⁣ Skref sex: Ég dansa inn í jólin á réttum tíma í hinum fullkomna kjól, sem ég valdi í þeirri stærð sem ég passa í og akkurat þannig krakkar, komist þið í fjandans kjólinn fyrir jólin.⁣🎄💃🏼 ⁣ Svo bara njóta……& elska sjáfan sig og muna, þú kemst í kjólinn fyrir jólin, þetta snýst bara um að kaupa kjólinn í réttri stærð🙌🏻

A post shared by 𝐸𝓇𝓃𝓊𝓁𝒶𝓃𝒹 (@ernuland) on

Justin Bieber klæddist þessum umdeildu skóm um helgina

Skóval Justins Bieber um helgina vakti mikla athygli hjá tískuunnendum.

Tónlistarmaðurinn Justin Bieber er óhræddur við að taka áhættu þegar kemur að klæðaburði og tísku. Það sýndi hann og sannaði um helgina þegar hann klæddist Crocs skóm.

Crocs skórnir eru afar umdeildir. Ákveðinn hópur heldur því fram að þetta séu þægilegustu skór sem fyrirfinnast á meðan aðrir segja skóna vera risavaxið hönnunarslys.

En Bieber er ekki sá einni sem hefur reynt að koma Crocs skónum í tísku. Söngkonan Ariana Grande klæddist til að mynda Crocs skóm á dögunum. Rihanna hefur einnig klæðst Crocs skóm á almannafæri og sömuleiðis rapparinn Post Malone.

Justin Bieber klæddist Crocs skóm í gær.

View this post on Instagram

wanderin n wonderin 🍂

A post shared by Ariana Grande (@arianagrande) on

Áhugaverðar umræður í Iðnó

Reykjavík Creative Hub er nýlega stofnuð miðstöð kvikmyndafólks sem stendur fyrir mánaðarlegum pallborðsumræðum um kvikmyndir.

Á fimmtudaginn munu Anton Máni Svansson, framleiðandi kvikmyndarinnar Hvítur, hvítur dagur, og Lilja Ósk Snorradóttir, framleiðandi kvikmyndarinnar Bergmál, taka til máls í Iðnó. Að því loknu gefst gestum tækifæri til að kynna sig og hugmyndir sínar og kynnast öðru fólki á sínu sviði.

Eftir viðburðinn verður „happy hour“ á fyrstu hæð Iðnó. Seinna sama kvöld er opnunarhátíð RIFF-kvikmyndahátíðarinnar. Þeir sem eiga miða á hana eru hvattir til að staldra við.

Nánari upplýsingar um Reykjavík Creative Hub eru á Facebook-síðu miðstöðvarinnar.

Hugleikur Dagsson alheimsfrumsýnir Son Of The Day

Hugleikur Dagsson ferðaðist um alla Evrópu í vor með uppistandið sitt, Son Of The Day. Eftir átjan borga flakk endaði hann í Helsinki og lét kvikmynda ósköpin. Árni Sveins leikstýrði og Rakel Sævars framleiddi.

25. september næstkomandi ætlar hann að frumsýna upptökuna í Bíó Paradís. Herlegheitin hefjast klukkan 19:00. Það verða léttar veitingar og allskonar fjör.

Son Of The Day mun koma út á hinum ýmsu streymisveitum og iTunes í óktóber, fylgist með.

Sýningin hefst stundvíslega kl 20:00.

Besti vinurinn í baráttunni

Retinoid er eitt af fáum innihaldsefnum í snyrtivörum sem sannað hefur verið að virkar. Það er í raun regnhlífarhugtak yfir vörur sem innihalda retinol.

Töfraefnið góða vinnur á áferð húðarinnar, litablettum, bólum og öldrunarmerkjum. Síðustu árin hafa snyrtivörur sem innihalda þetta efni rokið úr hillunum og orðið okkar besti vinur í baráttunni gegn hrukkum.

Byrjaðu snemma

Í gegnum tíðina hefur konum verið ráðlagt að byrja að nota hrukkubana á við retinol upp úr þrítugu. Hinsvegar bendir margt til þess að gott sé að byrja um tuttugu og fimm ára aldurinn til að fyrirbyggja myndun sólarbletta og áhyggjuhrukkna.

Hægt og rólega

Jafnvægi er mikilvægt í þessum fræðum eins og annars staðar í lífinu. Retinol-efnið getur ert húðina ef það er notað of oft eða ef formúlan er of sterk fyrir húð þína. Húðlæknar mæla með því að byrja á kremum sem innihalda lítið magn (0.01-0.03%) tvisvar í viku og auka skammtinn smám saman til að byrja með til að leyfa húðinni að venjast efninu. Einnig er hægt að fá formúlur sem henta viðkvæmri húð vel.

Bara á kvöldin

Notið retinol eingöngu að kvöldi til og munið eftir sólarvörn á daginn, allavega með spf-vörn 30 eða yfir (allt árið um kring!). Ekki er mælt með því að nota retinol þegar viðkomandi er í sól í langan tíma.

Aukaverkanir

Sumar aukaverkanir, eins og væg erting, þurrkur eða viðkvæmni fyrir sól, eru eðlilegar. Hins vegar, ef húðin á þér flagnar eða er mjög rauð gæti verið að þú þurfir að sleppa því að nota efnið. Margir sem eru með rósroða eða exem ættu að fara varlega þegar retinol er annars vegar og jafnvel sleppa notkun þess. Ef þú þolir það ekki getum við mælt með villtu indigo sem virkar mjög vel gegn fínum línum, án þess að erta húðina.

Mundu eftir hálsinum

Berið retinol-vörur ekki eingöngu í andlitið heldur líka niður hálsinn og á bringuna. Þeir staðir eiga oft til að gleymast en fá sinn skerf af fínum línum. Gott er að blanda retinol-dropum út í krem sem inniheldur ceramide til þess að dreifa auðveldlega yfir stærra svæði.

Furðulegt klapp Natöshu Lyonne vekur athygli

|
Leikkonan Natasha Lyonne lét sig ekki vanta á Emmy-verðlaunahátíðina í nótt. Hún hlaut tvær tilnefningar. 

Mikið grín hefur verið gert að leikkonunni Natöshu Lyonne í dag á samfélagsmiðlum. Ástæðan er sú að hún klappaði afar óvenjulega á hátíðinni og að sjálfsögðu náðist það á myndband.

Á meðfylgndi myndbandi má sjá hvernig Natasha klappar og það verður að viðurkennar að um óvenjulegan klappstíl er að ræða.

Aðferð Natöshu við að klappa minnir óneitanlega á klapp Nicole Kidman á Óskarnum árið 2017. Seinna útskýrði Nicole að skýringin á þessu skrítna klappi væri rándýru skartgripirnir sem hún fékk að láni og bar þetta kvöld. Hún vildi ekki skemma þá með einhverjum brussulátum.

https://twitter.com/itslaurenyap/status/836032592780619777?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E836032592780619777&ref_url=https%3A%2F%2Fwww.mbl.is%2Ffolk%2Ffrettir%2F2017%2F02%2F27%2Fskringilegt_klapp_nicole_kidman_vekur_athygli%2F

Raddir