- Auglýsing -
Fjölmiðlamaðurinn á RÚV, Einar Þorsteinsson og kona hans, Milla Ósk Magnúsdóttir, fyrrverandi fjölmiðlakona sem starfaði sem aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í síðustu ríkisstjórn, eiga von á barni saman.
Þau deildu mynd af sér á Instagram af sér og skrifað var:
„Þrjú á leið á árshátíð.“
- Auglýsing -
Einar á fyrir tvær stúlkur, en þetta verður fyrsta barn Millu en þau gengu í hjónaband í ágúst í fyrra.
Hamingjuóskunum rignir inn til þessara fallegu hjóna sem brosa hringinn, enda góð ástæða til.
- Auglýsing -
Mannlíf sendir hjónunum hamingjuóskir.