- Auglýsing -
Hinn frábæri söngvari okkar Íslendinga, Friðrik Ómar, glímir nú við Covid 19 eins og svo margir aðrir hér á landi, en þvert ofan í allar bjartsýnisspár ferðaþjónustunnar og ríkisstjórnarinnar er faraldurinn alls ekki í rénum; hann er að aukast.
Spyrjið bara Þórólf!
En stórsöngvarinn Friðrik Ómar ber sig vel eins og honum er tamt.
Segir:
„Einangrun. Dagur 3/10. Sólargeislar vel þegnir í morgunsárið. Næg matarlyst en ekkert bragðskyn. Annars fínn!“
- Auglýsing -