- Auglýsing -
Stórsöngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir segir í viðtali við Vísi að henni hafi brugðið mjög að sjá frétt þess efnis að hún væri ólétt; hún hafði ekki einu sinni verið búin að segja dóttur sinni að hún væri að fara að eignast nýtt systkin.
Jóhanna Guðrún skildi við eiginmann sinn og barnsföður fyrr á árinu; var greint frá því að hún væri komin í samband með Ólafi Friðriki Ólafssyni – en hann var áður kærasti hennar.
Jóhanna Guðrún segir að það hafi verið erfitt að sjá frétt á mbl.is um að hún ætti von á barni. Og hún er ekki sátt:
„Ef það er eitthvað sem ég hef lært, því miður, að í þessum geira sem ég er í þá verður maður svolítið bara að kyngja því að maður á sér ekkert „privacy“. Þetta var samt alveg pínu áfall fyrir mig, að þetta skyldi vera tilkynnt án þess að einhver reyndi einu sinni að hafa samband við mig. Ég var ekki einu sinni búin að segja dóttur minni þetta,“ sagði Jóhanna Guðrún í áðurnefndu viðtali við Vísi.
Jóhanna Guðrún hafði ætlað að bíða eftir að 20 vikna sónar, til að segja börnunum sínum gleðifréttirnar:
„Ég þurfti að hringja í frístundaheimilið hjá dóttur minni og segja henni þetta í símanum af því að fólk var byrjað að blaðra um þetta út um allt. Þetta finnst mér ljótt. Ég skildi fréttirnar um mig og Óla, ég vissi að það kæmi fyrr eða síðar. En ég hef aldrei séð áður fjölmiðil gera þetta. Ég varð leið. Ég er ekki mjög hörundsár en þetta fannst mér innrás inn í mitt einkalíf. Meira heldur en það sem maður á að þurfa að þola. Líka bara af því að börnin eru í nýjum aðstæðum, með nýjan stjúppabba og á nýju heimili. Maður er því kannski ekki að segja þetta nema maður viti að allt sé í lagi,“ segir Jóhanna Guðrún og bætir við:
„Ég er alveg nokkuð viss um að þessi blaðamaður sem setti þessa frétt inn, hún hefur pottþétt ekki gert sér grein fyrir því að ég á tvö börn. Ég á sex ára barn í skóla, þar sem fólk talar. Hún vissi ekki að ég væri ófrísk svo þetta gerði mig mjög reiða.“