- Auglýsing -
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir sem upplýsti þjóðina um ofbeldismál tengt Kolbeini Sigþórssyni, sem varðar hana, glímir við vefjagigt:
„Ég er með vefjagigt og einkenni hennar blossa upp þegar ég er undir miklu álagi,“ segir hún og bætir við að fylgifiskar sjúkdómsins séu af ýmsum toga, þar á meðal óeðlilegur kvíði, svefntruflanir og verkir í vöðvum.
Hún vill meina með orðum sínum á Twitter að vefjagigtin hafi blossað mikið upp eftir að mál hennar og Kolbeins komst í hámæli og að hún hafi ekki gert þetta vegna athyglissýki.
Hún bætir við:
„Til þeirra sem halda því fram ég gerði þetta fyrir athygli fokk off.“