Hinar ýmsu persónur hafa verið orðaðar við borgarstjóraframboð að undanförnu. Sumir hafa nú þegar tilkynnt um framboð sitt en aðrir eru að hugsa sig um. Eiríkur Jónsson hvíslaði nafni í dag á fréttasíðu sinni, sem hann segir vera á leið í framboð.
„Sagt er að Halldór Benjamín Þorbergsson, talsmaður Samtaka atvinnulífsins um árabil, sé að yfirgefa þá skútu eftir kurr um borð. Í framhaldinu stefni hann að því ásamt pólitískum bakhjörlum sínum að fara í oddvitaprófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni eftir áramót, rúlla því upp og verða borgarstjóri – Benjamín borgarstjóri.“
Eiríkur þykir hafa nokkuð gott fréttanef og verður því spennandi að sjá hvort af þessu verður.