Sölufulltrúar frá spænska byggingafélaginu Euromarina halda kynningarfund á Hótel Íslandi 2. og 3. mars frá klukkan 14:00 til 18:00.
Á fundi Euromarina munu sölufulltrúar veita áhugasömum upplýsingar um fasteignakaup á Spáni. Eins munu þeir kynna skoðunarferðir og sýna nýjustu eignirnar.
Kristján Sveinsson, sölufulltrúi Euromarina, segir sölufulltrúa fyrirtækisins leggja ríka áherslu á að sinna íslenskum markaði og því koma þeir reglulega til landsins til að halda kynningarfundi.
Þess má geta að Euromarina er stórt og vaxandi fyrirtæki með um 50 ára reynslu í að byggja og selja eignir á Spáni. Euromarina hefur selt Íslendingum eignir á Spáni í 20 ár. Fjölbreytileiki einkennir það úrval fasteigna sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða. Allir viðskiptavinir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort heldur sem þeir óska eftir eign við ströndina, í þéttbýli eða einbýli á stórri jörð.
Hægt er að skoða Euromarina nánar á vef þeirra.
Euromarina er í samstarfi við Fasteignasölu Reykjavíkur, Skeifuni 17.
Kristján bendir á að hægt sé fá nánari upplýsingar hjá honum í síma 6902665 og í gegnum [email protected].