Reykjavík Meat er steikarstaður sem býður þó einnig upp á fisk-, grænmetis- og Veganrétti. Á hátíðinni Food & Fun verður í boði glæsilegur matseðill bandaríska matreiðslumeistarans Hamiltons Johnson þar sem túnfiski, leturhumri, nautalund og súkkulaði er gert hátt undir höfði á listilegan hátt.
Veitingastaðurinn Reykjavík Meat sem er til húsa við Frakkastíg 8b, var opnaður í fyrrahaust og er um að ræða steikarstað þar sem jafnframt er boðið upp á fisk-, grænmetis- og veganrétti og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Reykjavík Meat tekur þátt í Food & Fun í ár og er það bandaríski matreiðslumeistarinn Hamilton Johnson sem galdrar fram girnilegan matseðil þar sem túnfiski, leturhumri, nautalund og súkkulaði er gert hátt undir höfði á listilegan hátt.
„Hamilton er með margar góðar pælingar,“ segir Almar Yngvi Garðarsson, veitingarstjóri og einn eigenda veitingastaðarins. „Það verður til dæmis reykt beikon með leturhumrinum sem maður er ekki vanur að fá og svo verður kálfatunga með aðalréttinum,“segir Almar en fyrst fá gestir smárétti til að hita upp bragðlaukana, síðan er túnfiskur í forrétt, leturhumar í millirétt, nautalund í aðalrétt og vindlareykt súkkulaði í eftirrétt. „Ég hlakka mikið til að vinna með Hamilton. Þetta er í áttunda skipti sem ég tek þátt í Food & Fun og er með góða reynslu af þessu og ég held að Hamilton hafi tekið þrisvar áður þátt í Food & Fun hér á landi.“
Hamilton er þekktur fyrir að blanda einstökum sem og þekktum hráefnum saman á óhefðbundinn hátt. Hann keppir reglulega í alþjóðlegum matreiðslukeppnum og árið 2016 var hann annar tveggja matreiðslumeistara í efstu sætum í alheimskeppni Food & Fun sem haldin var í Finnlandi. Þess má geta að norski barþjónninn Jörgen Jørgen Dons er gestabarþjónn á Reykjavík Meat á meðan á Food & Fun stendur en hann býr til sinn eigin kokteilaseðil af þessu tilefni.
Almar segir að þátttaka í Food & Fun skipti máli fyrir Reykjavík Meat upp á að fá tengsl út í heim með þátttöku Hamiltons. „Mér finnst Food & Fun vera mjög skemmtileg hugmynd. Þetta er hátíð þar sem fólk fær að prófa eitthvað nýtt og það er alltaf gaman að fá að gleðja bragðlaukana hjá fólki. Það er líka gaman að fá kúnnahóp sem maður er ekki vanur að fá en sem stundar að fara á Food & Fun og finnur okkur í raun í gegnum þessa hátíð.“
Matseðillinn
TÚNFISKUR
Hnúðkál, „vodouvan“, radísur, rúgbrauð, andalifur
GRILLAÐUR HUMAR
Svín, fennel, jarðskokkar, svört truffla
NAUTALUND
Hvítkál, smælki-kartöflur, sellerírót, nautatunga, bláber
KAFFI & VINDLAR
Malt, súkkulaði, vindill, karamella, heslihnetur, espressó, marens
Stúdíó Birtíngur í samstarfi við Reykjavík Meat