Íslenskt Astaxanthin heitir nýjasta vara KeyNatura sem er að koma á markað þessa dagana. Hún er ætluð fyrir þá sem vilja taka inn öfluga andoxunarefnið Astaxanthin í daglega næringu sína sem hefur afar jákvæð áhrif á líkamann.
Líftæknifyrirtækið KeyNatura setti nýlega á markað nýja vöru sem ber heitið Íslenskt Astaxanthin en hún er fyrir þá sem vilja taka inn öfluga andoxunarefnið Astaxanthin í daglega næringu sína. „Við köllum hana grunnvöru því um er að ræða hreint gæða Astaxanthin sem er blandað með E-vítamíni. Við teljum að Astaxanthin sé að komast á þann stall að verða eitt af þeim efnum sem allir munu hafa sem hluta af daglegri næringu sinni, líkt og Omega-3 og D-vítamín,“ segir Páll Arnar Hauksson, vöruhönnuður og vísindamaður hjá KeyNatura.
Einstaklega virkt
Astaxanthin er eitt af öflugustu andoxunarefnum náttúrunnar og er til að mynda 6.000 sinnum sterkara en C-vítamín segir Páll Arnar. „Astaxanthin vinnur að því að græða og vernda alla frumuna í heild sinni sem gerir það nokkuð frábrugðið öðrum andoxunarefnum. Fyrir vikið hefur það fjölmörg öflug áhrif á líkamann og starfsemi hans.“
Hann segir líkama okkar treysta á andoxunarefni til að létta oxandi streitu og hjálpa að lækna skemmda frumuvefi. „Til að útskýra þetta betur má segja að andoxunarefni á borð við Astaxanthin berjist gegn ferli oxunar og sindurefna sem herja á frumur líkamans með tímanum. Húð, vöðvar, liðbönd, sinar, augu, innri líffæri, hjarta- og æðakerfi ásamt taugakerfi eru öll móttækileg fyrir Astaxanthin, sem gerir það einstaklega virkt meðal andoxunarefna.“
Mjög jákvæð áhrif
Andoxunarefnið Astaxanthin hefur verið rannsakað klínískt margoft og hafa niðurstöðurnar verið mjög jákvæðar segir Hafsteinn Eyland, sölu- og markaðsstjóri. „Niðurstöðurnar hafa m.a. sýnt að efnið verndar húðina fyrir sólargeislum og dregur þar með úr ótímabærri öldrun húðarinnar þar sem hún heldur betur í raka og er teygjanlegri. Húðin þornar því síður og hrukkast eins og gerist hjá flestum þegar aldurinn færist yfir.“
Astaxanthin hefur einnig sýnt fram á jákvæð áhrif á úthald og orku þar sem efnið eykur þrek og vöðvamyndun við æfingar auk þess sem það veitir betri endurheimt vöðva eftir átök, bætir Hafsteinn við. „Astaxanthin hefur ýmis jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfi en það getur dregið úr myndun á vonda kólesterólinu og aukið við það „góða“, auk þess sem það hefur jákvæð áhrif á blóðflæði og minnkar bólgur.“
Einnig hefur verið sýnt fram á að með inntöku Astaxanthin getur stirðleiki og verkir í liðum minnkað umtalsvert. „Auk þess hefur Astaxanthin jákvæð áhrif á augnheilsu því efnið verndar augnbotnana og getur því hjálpað til við augnþreytu, þurrk og minnkað eða hægt á augnhrörnun sem svo margir upplifa með hækkandi aldri.“
Þetta er sjötta varan sem fyrirtækið setur á markað en fyrir eru AstaSkin, AstaLýsi, AstaCardio, AstaFuel og AstaEnergy.
Úr íslenskri náttúru
Lykilefnið í fæðubótarvörum fyrirtækisins er sótt í íslenska náttúru þar sem smáþörungar og íslenskt vatn skipa stærstan sess segir Hafsteinn. „Lykilhráefnið okkar, Astaxanthin, sækjum við frá smáþörungunum okkar sem við ræktum í n.k. vatns-gróðurhúsi í Hafnarfirði. Þörungarnir eru eðlilega fagur grænir en þegar þeir hafa náð ákveðinni þykkt og massa eru þeir settir í mjög sterkt ljós þar sem þeir fara í ákveðið varnarviðmót. Á því stigi byrja þeir að framleiða Astaxanthinið til þess að vernda sjálfa sig en efnið er dökkrautt á lit.“
Auk smáþörunganna er notast við hreina og góða íslenska vatnið, led-ljós, koltvísýring og íslenska orku í framleiðsluferlinu. „Það er gaman að segja frá því að úrgangsefni framleiðslunnar er í raun bara súrefni og nánast hreinna vatn en það sem notað var upphaflega.“
Erlendis fer skyld framleiðsla fram með ýmsum hætti, t.d. í opnum tjörnum. Þá fer eðlilega margt úr umhverfinu og andrúmsloftinu í vöruna segir Páll Arnar. „Það er vel hægt að ímynda sér alla mengunina og ýmislegt annað sem fer þar ofan í. Hreinleiki og gæði Astaxanthin haldast í hendur við framleiðsluaðferðir okkar. Því var lykilatriði að koma upp framleiðslutækni sem tryggði 100% hreinleika, 100% gæði og skildi eftir sig sem minnsta kolefnisfótspor. Þessu höfum við náð með góðum árangri sem m.a. hefur skilað sér í nýjustu vörunni okkar, Íslensku Astaxanthin, sem hentar þeim sem vilja huga að heilsunni, ná árangri og upplifa almenna vellíðan.“
Nánari upplýsingar á www.keynatura.com.