Vöruúrvalið og fjölbreytnin hefur aldrei verið meiri.
Verslanirnar Hrím eru orðnar þrjár talsins, ein á Laugaveginum og tvær í Kringlunni. Nýjasta verslunin er á fyrstu hæð Kringlunnar þar sem Mýrin var áður.
Framkvæmdastjóri Hrím, Tinna Brá Baldvinsdóttir er afar stolt af nýjustu versluninni og þeim fjölmörgu nýju vörum sem nú má finna í Hrím.
,,Við erum ótrúlega glöð að hafa loksins opnað stóra og góða verslun í Kringlunni þar sem við getum verið með breiðara vöruúrval eins og á Laugavegi 25 þar sem við erum nýverið búin að opna upp á aðra hæð.
Eins og ávallt leggjum við mikið upp úr íslenskri hönnun og við erum mjög stolt af þeim nýju merkjum sem bæst hafa við nýlega í Kringlunni. Þar má meðal annars nefna vörur frá Feld, Farmers Market, OrraFInn og As we grow,” segir hún.
,,Við leggjum mikla áherslu á að fólki finnist gaman að koma í Hrím og skoða fjölbreytta og skemmtilega hönnunarvöru. Að okkar mati snýst þetta um heildarupplifun viðskiptavinarins, við vöndum okkur við gluggaútstillingar, veljum skemmtilega tónlist í verslunum okkar, notum til að mynda
sérhannaðan gjafapappír og svona mætti lengi telja,” segir hún og bætir við að mikilvægast af öllu sé auðvitað persónuleg og góð þjónusta frá þeirra frábæra starfsfólki.
,,Nýlega fórum við að hanna og framleiða nokkrar vörur í samstarfi við flott listafólk. Þar má til dæmis nefna Regnpokann sem hefur heldur betur slegið í gegn. Að sama skapi erum við ótrúlega stolt af platkötunum okkar sem við köllum Jurtir by Hrím.”
Áhugaverðar vörur
Það er ekki úr vegi að biðja Tinnu um að nefna nokkrar áhugaverðar vörur í Hrím. Hún hugsar sig um og nefnir til sögunnar regnpoka sem fæst í búðunum. ,,Þessa vöru hannaði ég ásamt Bobby Breiðholt sem útfærði lógó-ið með mér,” segir hún. ,,Regnpokinn hefur verið mjög vinsæll hjá okkur fyrir útivistarfólk. Svo er fólk líka bara að elska notkunarmöguleikana þeirra og notar þá dagsdaglega í íslensku veðráttunni. Í pokann passar lítill Macbook sem einstaklega hentugt fyrir skólafólk sem og útvistarfólk sem getur án hans verið. Þetta verður jólagjöfin í ár. Frábært verð á þeim.
Þá er As we grow ný lína, falleg íslensk hönnun framleidd úr gæðaefni þar sem fáguð snið er höfð að leiðarljósi. Designletters svörtu bollarnir eru það heitasta í dag, ný lína nýkomin í verslanir. Og svo eru Thermo flöskurnar ómissandi á hvert heimili og rjúka út líkt og heitar lummur.”
Tinna minnist líka á plakötin ,,Jurtir by Hrím“ sem Hrím framleiðir en Tinnu langaði að gera plaköt af jurtum sem tengja hana við barnæskuna úti í náttúrunni í Stykkishólmi. Jurtir by Hrím verða með samtals tólf jurtum en þrjár nýjar komu á markað fyrir jól.
Texti / Sjöfn Þórðardóttir
Myndir / Hákon Davíð Björnsson