Ef þig langar í magnaða upplifun þá kemurðu með Ferðafélagi Íslands í gönguferð fyrir Drangaskörð og að Dröngum þar sem Eiríkur Rauði á rætur sínar. Ferðin hefst 16. júní á Valgeirsstöðum í Árneshreppi þar sem gist verður í nýuppgerðum skála Ferðafélags Íslands. Daginn eftir verður siglt með hópinn í Drangavík þaðan sem gengið verður að Dröngum en farangrinum trússað. Tjaldað verður á Dröngum.
Drangaskörð eru einhver fegurstu fyrirbæri íslenskrar náttúru sem standa við norðanverða Drangavík á Ströndum. Flestir hafa séð Drangaskörð en fæstir komist í námunda við þau. Í þessari ferð gefst fólki kostur á að upplifa Drangana og skörðin í návígi. Þetta er sannkölluð ævintýraferð.
Haldið verður heimleiðis í Norðurfjörð 16. júní. Þá tekur við gæðastund á Valgeirsstöðum. Daginn eftir verður svo gengið á sjálfa Glissu.
Athugið að enn eru nokkur sæti laus. Skráning fer fram hér.
- Svona er dagskráin:
- Brottför/Mæting
- Fyrir kl. 19, miðvikudaginn 16. júní á einkabílum að Valgeirsstöðum í Norðurfirði.
- Fararstjórn
- Reynir Traustason og Guðrún Gunnsteinsdóttir.
- Innifalið
- Gisting, sigling, kjötsúpa x1, aðgangur að Kört og fararstjórn.
LEIÐARLÝSING
1.d., miðvikud. Fólk kemur sér fyrir á Valgeirsstöðum. Stutt ganga um Norðurfjörð.
2.d. Siglt í Drangavík. Fólk er ferjað í land en farangurinn fluttur áfram að Dröngum. Gengið út með Dröngunum sunnanverðum og norður um Signýjargötuskarð. Haldið með skörðunum norðanverðum að Dröngum þar sem farangurinn bíður. Tjaldað og grillað. 9 km.
3.d. Gengið upp Húsadal að Neðra-Húsadalsvatni og á Nónfjall. Bað í náttúrulaug. Siglt aftur í Norðurfjörð. Gist á Valgeirsstöðum. 12 km.
4.d. Gengið á Glissu og byggðasafnið Kört heimsótt. Sjósund, kvöldvaka og kjötsúpa.
5.d. Haldið heimleiðis með viðkomu á Gjögri.