Veitingastaðurinn Reykjavík Meat fagnar nú eins árs afmæli og af því tilefni býður staðurinn upp á girnilegan 5 rétta seðill á frábæru afmælisverði, aðeins 6.990 kr.
Reykjavík Meat opnaði þann 7. september 2018 á horninu á Frakkastíg og Hverfisgötu í nýju húsi á gamalgrónum stað í miðbæ Reykjavíkur. „Okkur fannst vanta steikarstað í fínni kantinum í Reykjavík,“ segir Almar Yngvi Garðarsson einn eigenda staðarins.
Nautakjötið er því áberandi á matseðlinum og hefur verið mjög vinsælt. Þeir sem aðhyllast ekki steikurnar þurfa þó ekki að örvænta því nóg er af öðrum réttum á matseðlinum, lambakjöt, fisk-, grænmetis- og veganréttir, auk forrétta og eftirrétta. „Við erum stolt af hágæðaréttum sem við bjóðum upp á sem eru matreiddir á kolagrillinu okkar. Notuð er blanda af viðarkolum og japönskum yakitori kolum sem gefa hráefninu frábært grillbragð.“
Sérstaða Reykjavík Meat felst meðal annars í því að staðurinn er sá eini hér á landi sem býður upp á sashi-nautakjöt, sem hefur á sér mikinn gæðastimpill og er margverðlaunað, nú síðast í World Steak Challenge árin 2018 og 2019.
Reykjavík Meat tekur 96 manns í sæti og faglærðir þjónar og kokkar sjá um að þjónusta gestina í mat og drykk. Hjarta staðarins er vínbúrið, sem er áberandi þegar setið er á staðnum og þar er úrval af vínum sem gott er að para saman með matnum.
„Okkur hefur verið frábærlega vel tekið frá því við opnuðum, og staðurinn vel sóttur bæði í hádeginu og á kvöldin,“ segir Almar. „Margir hafa komið til okkar oftar en einu sinni, en við tökum einnig vel á móti nýjum gestum sem ekki hafa heimsótt okkur áður.“
5 rétta afmælistilboðið býður upp á eftirtalda rétti á aðeins 6.990 kr.
- Forréttur
Nauta tvenna
Carpaccio & Tataki
Klettasalat, parmesan, truffluolía, sítróna
ponzu, hvítlaukur, villisveppir, granatepli - Milliréttur
Bleikja
Svartur hvítlaukur, parmaskinka, pera,
graskersfræ, stökkt brauð, dil - Aðalréttur
Nautalund
Blómkál, sætkartafla, piparrót, rauðlaukur, smælki kartöflur, soðgljái - Eftirréttur
“SNICKERS”
Salthnetur, karamella, mjólkursúkkulaði
Reykjavík Meat opnar eldhúsið í hádeginu kl. 11.30 – 14.00 Á kvöldið er eldhúsið opið kl. 17.30-22.00 sunnudaga til fimmtudaga,. Föstudaga og laugardaga er opnunartíminn lengri, eldhúsið er opið kl. 17-23. Staðurinn sjálfur lokar kl. 1 og því tilvalið að sitja lengur eftir góða máltíð áður en haldið er út í ys og þys næturlífs miðborgarinnar.
Borðapantanir eru í síma 557-7665, á netfanginu [email protected] og á dineout.is.
Matseðil, myndir og nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Reykjavík Meat og Facebook-síðu. Reykjavík Meat er einnig á Instagram.
Stúdíó Birtíngur
Í samstarfi við Reykjavík Meat
Myndir / www.rvkmeat.is