Ný lína af fallegum púðum – glóðvolgir
beint úr flugi
Það er alltaf gaman að breyta umhverfinu með litlum tilkostnaði, til dæmis með púðum og ábreiðum. Hægt er að breyta rýminu með því að setja fallega púða í rúmið eða sófann og hafa ábreiðu í stíl. Við hjá VOGUE FYRIR HEIMILIÐ vorum einmitt að taka inn nýjar vörur frá Claudi sem er hollensk gæðahönnun.
Vinsælu Starlux-gæðadýnurnar fyrir fermingarbarnið
Hjá VOGUE FYRIR HEIMILIÐ er gríðalega mikið úrval af rúmum og rúmdýnum. Fyrir fermingarnar eru Starlux-gæðadýnur vinsælastar en þær eru hannaðar af fagfólki okkar og framleiddar erlendis. Þær eru með tvo stífleika, mjúkan og stífan, og því er hægt að snúa þeim við. Hver dýna er með sérstyrktum kanti, þannig að þegar unglingarnir sitja í rúminu heldur hún sínu lagi.
Svefnstóllinn Loki
Svefnstóllinn Loki er hönnun frá Snæland en hann nýtur gríðarlegrar vinsældar bæði í unglingaherbergið og sem aukasvefnstæði hjá ömmum og öfum. Hægt er að velja áklæði úr fjölmörgum litum og hægt að fá hann í nokkrum breiddum.
Antíkbleikt og dökkgrár eru móðins
í dag – Flott í unglingaherbergið
Antíkbleiki liturinn er mjög vinsæll og kemur mjög vel út með
dökkgráa litnum.
Fjölbreyttir fylgihlutir og
litagleðin í fyrirrúmi
Einnig eru fáanlegir fallegir fylgihlutir, má þar meðal annars nefna skápúðana sem eru frábærir til að hafa þegar unglingurinn er að lesa eða er í tölvunni. Það getur verið gaman að velja áklæði í stíl fyrir dívaninn og höfðagaflinn. Einnig er hægt að velja hrúgald sem er hægt poppa upp með í skemmtilegum gulum lit eins og sjá má á myndinni. Þessi grái litur á rúminu er mjög vinsæll hjá ungu kynslóðinni. Tauið nýtur sífellt meiri vinsælda þegar valið er rúm.
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir