Matvælastofnun lagði bann við búfjárhaldi á bóndabæ í Hornafirði, vegna alvarlegra brota um dýravelferð.
Tilkynning birtist á vef Matvælastofnunar í dag en þar segir að vegna alvarlegra brota á lögum nr. 55/2013 um dýravelferð, hafi stofnunin lagt tímabundið bann við búfjárhald á umráðamann búfjár á bæ í Hornafirði fyrir austan.
Sendi stofnunin umráðamanninum tilkynningu um vörslusviptingu hrossa á bænum þriðjudaginn 22. nóvember. Flest hrossin voru í eigu viðkomandi umráðamanns en þó ekki öll. Var öðrum eigendum gefinn kostur á að taka sín hross í eigin umsjá. Hrossin voru flokkuð í samráði við settan bústjóra, 28. nóvember, undir eftirliti MAST. Var ákveðið, í samráði við eigandann, að senda 55 hross til slátrunar.