Andlitið eins og eftir efnabruna
Staðarmiðillinn Akureyri.net greinir frá þessu í morgun. Þar segir að hluturinn hafi verið stór geymsluhólkur. Starfsmaðurinn sem veiktist er einn af húsvörðunum í skólanum. Hann fékk að fara heim af sjúkrahúsinu í gær. Í samtali við Akureyri.net segir maðurinn að andlit hans hafi litið út eins og hann hefði orðið fyrir efnabruna. Læknar telja að hann hafi fengið heiftarleg ófnæmisviðbrögð.
Starfsmenn Geislavarna ríkisins komu norður í gærmorgun og rannsökuðu hlutinn sem reyndist ekki geislavirkur eins og óttast var.
Eyjólfur S. Guðmundsson, rektors Háskólans á Akureyri, segir á Akureyri.net að enginn kannist við hlutinn. „Ég er jafn spenntur og þú að komast að því hvað þessi hlutur er að gera þarna og til hvers hann hefur verið notaður,“ sagði Eyjólfur við Akureyri.net
Geislavarnir ríkisins skoðuðu hlutinn
Starfsmenn Geislavarna ríkisins komu norður í gær og skoðuðu geymsluhólkinn. Niðurstaða þeirra var að hann væri ekki geislavirkur. Þá mældist engin geislavirkni í kjallara bókasafnsins, þar sem hluturinn var geymdur.