Tæplega 28 prósent Austfirðinga hafa nú þegið örvunarsprautu vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Er það langstærsta hlutfall sprautuþega á landinu.
Austurfrétt segir frá þessu í dag. Upplýsingarnar eru fengnar frá Covid.is en heildarhlutfall fullbólusettra Austfirðinga sem hafa þegið eina örvunarsprautu, stendur í 77 prósentum. Er það á pari við heildarfjöldann annars staðar á landinu.
Hingað til hafa Austfirðingar verið mun duglegir að þiggja þriðja skammt bóluefna en rúmlega 3000 manns hefur fengið skammtinn. Er það um 28% Austfirðinga. Á sama tíma hafa ekki nema rífalega 17% Sunnlendinga fengið þrjár sprautur en það er næst hæsta hlutfallið á landinu.
í augnablikinu eru 24 í einangrun Austanlands og 33 til viðbótar eru í sóttkví.