Sunnudagur 5. janúar, 2025
-11.2 C
Reykjavik

Börkur NK með mesta loðnufarm sögunnar: „Það er ekki hægt að kvarta yfir slíkum aflabrögðum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Börkur NK setti heimsmet fyrir helgi þegar skipið landaði rúmum 3.400 tonnum af loðnu á Seyðisfirði. Bætti skipið þannig met Beitis frá því um miðjan janúar þegar hann landaði 3.200 tonnum í Noregi. Austurfrétt segir frá þessu í dag.

„Þessi afli fékkst í átta holum á fjórum dögum. Það er ekki hægt að kvarta yfir slíkum aflabrögðum,“ segir Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki í samtali á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Hjörvar var auðvitað hæst ánægður með veiðina.

„Það eru einungis þrjú skip í íslenska flotanum sem geta komið með álíka afla að landi. Börkur, systurskipið Vilhelm Þorsteinsson EA og Beitir NK, en lestarrými Beitis er þó heldur minna en hinna tveggja. Mér vitanlega er einungis eitt skip sem getur slegið þetta met og er það hin danska Ruth. Ruth er spánný og smíðuð í Karstensens skipasmíðastöðinni eins og Börkur og Vilhelm og er með örlítið meiri burðargetu,“ segir Hjörvar.

„Þetta er gæðahráefni og vinnslan hjá okkur gengur afar vel. Nú er líka góð veiði og nóg hráefni og við erum að undirbúa löndun úr Barða NK,“ segir Eggert Ólafur Einarsson, verksmiðjustjóri á Seyðisfirði, í samtali á vefsíðunni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -