Enn finnast kindur með genaarfgerðina ARR, sem vísindamenn telja að veiti vörn gegn riðu, á bænum Þernunesi í Reyðarfirði. Fimm ær fundust nú nýverið.
Austurglugginn segir frá því að skipulega hafi verið farið í gegnum hjörðina á bænum Þernunesi í Reyðarfirði, síðan afbrigðið fannst fyrst í byrjun árs. Hefur Austurglugginn þetta eftir frétt Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins.
Niðurstöður á greiningum á 136 sýnum frá bænum, bárust í byrjun mánaðar en af þeim voru fimm nýjar kindur með afgerðina. Eru ærnar því orðnar 14 samtals.
Í heildina hafa verið tekin 18.000 sýni úr sauðfé um land allt í leit að genum sem veitt geta riðunni. Voru sýnin send til Þýskalands þar sem um þriðjungur hefur nú verið fullgreind. Frekari niðurstöður úr sýnum er að vænta á næstu dögum en þau sýni voru send út í byrjun mars.