Miðvikudagur 8. janúar, 2025
-8.2 C
Reykjavik

Fuglaflensa drap kettling frá Ísafirði rétt fyrir jól: „Kettir geti smitast við veiðar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tíu vikna gamall kettlingur drapst eftir að hafa smitast af fuglaflensu en Matvælastofnun greinir frá þessu í tilkynningu. MAST telur líklegast að kettlingurinn af smitast af villtum fugli sem var sýktur en smithætta fyrir fólk af völdum fuglainflúensuveira er lítil.

„Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum tilkynnti Matvælastofnun þann 6. janúar að kettlingur, sem barst rannsóknarstöðinni til krufningar, hefði greinst með skætt afbrigði fuglainflúensu (H5N5). Það er sama afbrigði og hefur greinst í villtum fuglum hér á landi frá því í september í fyrra og á einu alifuglabúi í byrjun desember. Matvælastofnun gaf strax fyrirmæli um sóttvarnir til að hindra smitdreifingu og vinnur nú að því að rekja smitið. Sjúkdómseinkenni í þessum ketti voru m.a. lystarleysi, slappleiki, stífleiki, skjálfti, krampar og önnur taugaeinkenni. Kattaeigendur eru beðnir um að hafa strax samband við dýralækni verði þeir varir við slík einkenni í köttum sínum,“ segir í tilkynningu MAST um málið.

„Kötturinn sem fuglainflúensan greindist í var 10 vikna kettlingur sem drapst 22. desember. Læðan sem kettlingurinn var undan og annar kettlingur úr sama goti drápust eftir stutt veikindi tveimur dögum áður. Þau voru ekki rannsökuð. Önnur gotsystkini kettlingsins voru farin af heimilinu áður en veikindi komu upp og eru í dag öll einkennalaus. Kettirnir eru frá Ísafirði en kettlingurinn sem sýkingin greindist í var kominn til Reykjavíkur. Samband hefur verið haft við eigendur allra kattanna.

Matvælastofnun álítur að líklegast sé að kettirnir hafi smitast af sýktum villtum fugli. Að svo stöddu eru engar vísbendingar um smit í fleiri köttum, en Matvælastofnun biður kattaeigendur og dýralækna að vera á verði gagnvart sjúkdómseinkennum sem geta bent til fuglainflúensusmits. Nokkuð hefur verið um greiningar í villtum fuglum undanfarna mánuði og því einhver hætta til staðar að kettir geti smitast við veiðar eða af hræjum sem þeir komast í.“

MAST telur þó hættuna ekki það mikla að ástæða sé til að vara við útigöngu katta eins og staðan er núna en minnir á að gæta ávallt almenns hreinlætis í umgengni við dýr og umhirðu þeirra. Þá minnir MAST fólk á að tilkynna um villta fugla og villt spendýr sem finnast dauð.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -