Föstudagur 13. desember, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Fyrsta skóflustungan að nýjum miðbæ í Þorlákshöfn: „Þetta er sögulegur dagur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í dag hófst nýr kafli í sögu Þorlákshafnar þegar fyrsta skóflustungan að nýjum miðbæ á Þorlákshöfn var tekin með viðhöfn. Skóflustunguna tók Grétar Ingi Erlendsson, formaður bæjarráðs og einn af drifkröftunum á bak við hinn nýja miðbæ. Verkefnið, sem hefur lengi verið í undirbúningi, mun umbreyta hjarta bæjarins og skapa aðlaðandi og lifandi miðbæ fyrir íbúa og gesti.

Nýr miðbær, sem hefur verið kynntur undir slagorðunum „Þorp verður bær“, er hannaður til að verða miðstöð samfélags og menningar í bænum. Áætlanir gera ráð fyrir fjölbreyttri uppbyggingu sem mun innihalda verslanir, veitingastaði, þjónusturými og opin svæði þar sem íbúar geta komið saman.

Íbúum í Ölfusi, og þá sérstaklega í Þorlákshöfn, hefur fjölgað mjög hratt á seinustu árum og nálgast nú að verða 3000. Ekkert lát er á sóknarhuginum og til marks um það eru núna rúmlega 200 íbúðir í byggingu.

Grétar Inga Erlendsson fomann bæjarráðs taka fyrstu skóflustunguna. Með honum á myndinni eru þeir Hjalti Kjartansson fulltrúi Arnarhvols sem er framkvæmdaraðilinn og Elliði Vignisson bæjarstjóri
Ljósmynd: Aðsend

 

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, lagði áherslu á mikilvægi verkefnisins fyrir samfélagið við skóflustunguna:

„Þetta er sögulegur dagur fyrir Þorlákshöfn. Á forsendum verðmætasköpunar er nú mögulegt að skapa velferð sem skilar okkur sterkara og betra samfélagi. Með uppbyggingu nýs miðbæjar erum við að fylgja framtíðarsýn sem byggir á samheldni íbúa, sjálfbærri sókn og nýsköpun. Við hlökkum til að sjá þennan miðbæ verða miðpunkt mannlífsins í bænum og vaxandi þjónustu.“

- Auglýsing -

Mikil áhersla er lögð á að miðbæjarverkefnið verði í samræmi við nýjustu kröfur í umhverfis- og byggingarmálum. Verkefnið er sérstaklega til þess fallið að skapa umgjörð sem hvetur til uppbyggjandi samveru. Til marks um það verður skautasvell á miðbæjartorginu og velbúinn menningarsalu auk verslana, veitingastaða og fl.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -