- Auglýsing -
Opnunartíma sundlaugarinnar á Kirkjubæjarklaustri hefur nú verið breytt. Ástæðan er stórvægilegur hallarekstur laugarinnar.
Samkvæmt sunnlenska.is kemur fram í fundargerð sveitastjórnarinn að hallarekstur sundlaugarinnar nemi um fimm milljónum á mánuði að meðaltali, fyrstu sjö mánuði þessa árs.
Gerð var tilraun með að auka opnunartíma laugarinnar en hún gekk ekki upp. Samþykkti því sveitarstjórnin að framvegis verðir hún opin kl. 11 til 19 mánudaga til laugardags en lokuð á sunnudögum og á rauðum dögum.