- Auglýsing -
„Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að aflýsa hættustigi á rýmingarsvæðum í Neskaupstað frá klukkan 12:00 í dag,“ segir í tilkynningu sem Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, sendi fyrir stuttu á fjölmiðla en undanfarna daga hefur allt verið í kafi í snjó víðsvegar á Austurlandi.
„Öllum rýmingum í Neskaupstað hefur því verið aflétt. Íbúum á rýmingarsvæðum er óhætt að snúa heim og starfsemi hjá fyrirtækjum á rýmdum svæðum má hefjast að nýju. Verið er skoða stöðuna á Seyðisfirði. Gera má ráð fyrir að rýmingum þar verði aflétt síðar í dag.“