Foreldrar barna í Eiða- og Hjaltastaðaþinghá fyrir austan, óskuðu eftir því að bætt yrði við skólaakstur svo börnin gætu tekið þátt í íþróttum og tómstundum. Var beiðninni hafnað.
Samkvæmt Austurfrétt var þessari beiðni hafnað og var það staðfest á fundi fjölskylduráðs Múlaþings í vikunni en bréf með óskum foreldranna barst sveitarfélaginu í ágústbyrjun. Byggir höfnunin á þeim reglum að skólaakstur skuli einungis fara fram við upphaf og lok hvers skóladags.
Snérust óskir foreldranna bæði um aukinn akstur svo börnin í sveitinni kæmust heim til sín þó þau tækju þátt í íþrótta- og tómstundastarfi eftir að skólatíma líkur, sem og að sveitarfélagið breytti formlegum skólaakstri á þessu svæði í almenningssamgöngur.
Austurfrétt segir að það að skólaakstur heyri undir fjölskylduráð á meðan almenningssamgöngur heyri undir umhverfis- og framkvæmdaráðs, flæki málið af hálfu Múlaþings. Fjölskylduráðið hefur þó ekki alfarið lokað á málið en það hefur nú falið fræðslustjóra Múlaþings að vinna samantekt á öllum skólaakstri í Múlaþingi, í kjölfar erindisins.