- Auglýsing -
Íbúar á Fljótsdalshéraði vöknuðu í morgun við hvíta jörð.
Fyrsti snjór vetrarins er fallinn austur á Héraði en ekki er líklegt að snjórinn haldist lengi en framundan er spáð rigningu og nokkurra stiga hita, að degi til í það minnsta. Norðanlands er aftur á móti spáð allhvassri norðvestanátt með slyddu eða snjókomu, samkvæmt Veðurstofu Íslands, sem varar við því að færð á fjallvegum geti spillst á næstu dögum.
Fyrir vestan er spáð kólnandi veðri en á Bolungarvík gæti snjóað eitthvað á næstunni en síðan er búist við að rigning taki við. Sunnanlands verður hvað hlýjast næstu daga en í höfuðborginni mun rigna töluvert.