Fimmtudagur 3. október, 2024
7.2 C
Reykjavik

Íbúum í Borgarnesi ráðlagt að sjóða drykkjarvatn vegna gruns um gerlamengun

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íbúar í Borgarnesi eru hvattir til að sjóða drykkjarvatn í varúðarskyni.

Veitur sendu frá sér tilkynningu í dag þar sem íbúum í Borgarnesi er ráðlagt að sjóða drykkjarvatn í varúðarskyni en verið er að kann mögulega kólígerla í vatni frá Seleyri við Borgarfjörð.

Samkvæmt tilkynningunni fær Borgarnes kalt vatn frá þreur veitum er Seleyrarveita eina af þeim. Ekkert bendir til gerlamengunar í vatninu frá Grábrók og Hafnarfjalli en það er gegnumlýst.

Veitur, auk heilbrigðiseftirliti Vesturlands eru að taka fleiri sýni úr neysluvatninu til frekari greiningar. Búast má við fyrstu niðurstöðum síðar í dag.

Í tilkynningunni segir að önnu svæði í Borgarbyggð fái ekki vatn frá Seleyri og þurfi ekki að grípa til ráðstafana. Þá kemur fram að huganlega sé um galla í sýnatöku að ræða en að Veitur vilji engu að síðu hafa varann á og upplýsa.

Hér má lesa leiðbeiningar frá Veitum um það hvernig eigi að sjóða vatnið:

- Auglýsing -

„Vatnið þarf að bullsjóða, það þýðir að sjóða í a.m.k. 1 mínútu. Hraðsuðukatlar bullsjóða vatn, en ef örbylgjuofn er notaður þarf að tryggja að vatnið sjóði almennilega. Nánari leiðbeiningar má finna á vef MAST.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -