Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir stórfelldar ærumeiðingar og kynferðisbrot gagnvart barnsmóður sinni en maðurinn deildi nektarmyndum af henni á samfélagsmiðlinum Facebook og Snapchat ásamt niðurlægjandi texta en mbl.is greindi frá málinu. Maðurinn er sagður hafa birt fimm myndir af fyrrverandi sambýliskonu sinni nakinni en krotaði fyrir brjóst og kynfæri hennar. Þá er hann sagður hafa hótað að birta myndirnar á fleiri stöðum. Mbl.is segir að málið virðist tengjast deildum fólksins um börn þeirra. Krafist er þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til að greiða konunni eina og hálfa milljóna króna í miskabætur en málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Norðurlands vestra.