Í tilkynningu á heimasíðu MAST er greint frá þremur stjórnvaldsákvörðunum sem teknar voru í september og er hægt að lesa þær hér fyrir neðan.
Dagsektir ákvarðaðar til að knýja fram úrbætur á velferð hrossa
Lagðar voru dagsektir að upphæð 10.000 kr. á dag á eiganda hrossa á Norðurlandi eystra. Hann sinnti ekki fyrirmælum MAST um að draga úr slysahættu fyrir hrossin og bæta hófhirðu.
Stjórnvaldssekt ákvörðuð vegna ólögmætrar aflífunar á hundi
Hundaeigandi á höfuðborgarsvæðinu ákvað að aflífa veikan hund sinn sjálfur með byssuskoti. Var það gert úti á landi. Dýralæknum einum er heimilt að aflífa gæludýr nema í neyðartilfellum sem ekki átti við. Stjórnvaldssekt að upphæð 230.000 kr. var lögð á eiganda hundsins.
Kúabú svipt mjólkursöluleyfi
Vegna lélegra mjólkurgæða var kúabú á Suðurlandi svipt mjólkursöluleyfi.