Föstudagur 15. nóvember, 2024
-0.1 C
Reykjavik

Landlæknir er bjartsýnn á framtíð HSS: „Það hefur verið mótvindur hér og erfið umræða“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Alma Dagbjört Möller landlæknir var viðstödd opnun nýrrar röntgendeildar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, HSS, ásamt Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra, í síðustu viku. Víkurfréttir voru á staðnum og tók Ölmu tali.

„Það er ánægjulegt að hér á HSS hefur verið tekið til hendinni og unnið að uppbyggingu á innviðum stofnunarinnar. Það er nauðsynlegt því mikil fólksfjölgun hefur orðið á svæðinu undanfarin ár sem kallar jú á aukna starfsemi og stærra húsnæði. Nú er komið að þeim tímamótum að fyrsti áfangi húsnæðisbreytinganna er tilbúinn sem er ný röntgendeild. Hún var flutt til að vera við hliðina á nýrri slysa- og bráðamóttöku en framkvæmdir við hana hefjast á næstu vikum,“ sagði Alma Dagbjört Möller landlæknir er ný röntgendeild var formlega opnuð á HSS í síðustu viku. Hvatti landlæknir starfsfólk Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til að halda áfram á þeirri vegferð að efla þjónustu HSS, gæði hennar og öryggi.

„Það hefur verið mótvindur hér og erfið umræða. Mig langar að segja það að það er mikill vilji til umbóta hjá stofnuninni. Það sé ég sem landlæknir því við höfum gert hér úttektir bæði á starfsemi heilsugæslu og legudeildar. Það er mín trú að hér verði aukin gæði og aukið öryggi sjúklinga. Svo má nefna það að það er afar mikilvægt að almenningur, þar með talið stjórnendur í sveitarfélögum og þingmenn taki utanum stofnunina og vinni með henni í þessari gæða- og umbótavegferð,“ segir Alma og á þá við umræðuna sem skapast hefur um stofnunina um nokkurt skeið, meðal annars vegna andláts níu sjúklinga HSS sem dr. Skúli Tómas Gunnlaugsson annaðist og hefur nú réttarstöðu grunaðra við rannsókn málsins. Alma gaf Skúla tvívegis starfsleyfi til að vinna á Landspítalanum, eftir að málið kom upp, þó með skilyrðum.

Sjá einnig: Skúli er undir eftirliti sérfræðinga spítalans í lyflækningum: „LSH fylgist með framvindu málsins“

„Það er verið að endurbæta húsnæðið mjög og þetta er fyrsti áfangi að opna nýja og glæsilega röntgendeild. Síðan verður haldið áfram með bráðamóttöku og fleira. Þetta er afskaplega mikilvægt því húsnæði er mikilvægur þáttur starfsumhverfis og hér hefur vantað á mönnun, ekki síst lækna. Mínar vonir eru að þetta geri stofnunina eftirsóttari vinnustað.“

Aðspurð um það hvaða leiðbeiningar hún hafi verið með til stofnunarinnar í ljósi alls sem á undan hefur gengið, svaraði Alma á eftirfarandi hátt:

- Auglýsing -

„Við höfum brýnt fyrir stofnuninni að ráðast í þær umbætur sem þarf, því við höfum greint bæði styrkleika og veikleika. Það er mikilvægast þegar erfið umræða kemur upp er að hlusta og líta inná við á hvað þurfi að laga og vinda sér í það. Ég sé að það er vilji til umbóta en umbætur eru ekki hristar fram úr erminni, þær taka tíma og í rauninni lýkur þeim aldrei. Mikilvægast er að hlusta og bregðast við eins og þarf.“

Varðandi framtíð HSS hefur Alma fulla trú á að þjónustan verði bætt.

„Ég hef fulla trú á því að hér verði bætt þjónusta og það er mikilvægt. Við sjáum hvað íbúum hér hefur fjölgað og það er afar mikilvægt að bæta þjónustuna og stækka húsnæði eins og við erum að sjá hérna í dag.“

- Auglýsing -

Landlæknisembættið gerði úttekt á HSS nýlega en meðal þess sem þarf að laga samkvæmt embættinu er efling mönnunar.

„Það er bara eins og víðast hvar í heilbrigðiskerfinu, það þarf að efla mönnun og það hjá flestum starfsstéttum og ég nefni sérstaklega lækna. Það þarf að efla teymisvinnu og almennt gæða- og öryggisstarf. Fleira mætti telja en þetta eru aðalatriðin.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -