- Auglýsing -
Lögreglan á Akureyri leitar að 12 ára dreng. Síðast er vitað af drengnum um kl. 07:40 í morgun, í Bugðusíðu á Akureyri.
Drengurinn er um 140-150 cm hár og var klæddur í úlpu sem er gul að neðan en dökk að ofan, með gula húfu, í gráum buxum, rauðum skóm og með svarta og græna tösku. Drengurinn er greindur með einhverfu.
Fólk sem telur sig hafa upplýsingar er beðið um að hafa samband við Lögreglu á Akureyri í síma 444-2800.
Uppfært klukkan 12:29
Drengurinn er fundinn heill á húfi.