Hveragerði hefur lengi vantað verslun sem uppfyllir tískuóskir kúnna og á sama tíma hugar að umhverfi og sparnaði en sú verslun virtist „Verahvergi“. Ótrúlegt en satt heitir nýja verslun Hveragerðis „Verahvergi.“ Verslunin selur notaðar flíkur og getur almenningur leigt bás og selt eigin flíkur.
Einstaklingar bóka sér bás og geta selt hluti sem ekki eru lengur í notkun en eru mögulega sem gull í höndum annarra. Ekki nóg með það þá eru notuðu flíkurnar mun ódýrari og er umhverfisvænna að endurnýta föt.
Eigandi Verahvergis er hálf dönsk kona og harðmæltur Akureyringur, Stella Christensen. Stella átti sér draum að opna verslun og lagði hún blóð, svita og tár í að láta hann rætast
Verslunin er staðsett við Austurmörk 1 í Hveragerði.