Fimmtudagur 30. janúar, 2025
-0.2 C
Reykjavik

Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Undarlegt mál er komið upp á Ísafirði en í síðustu viku kvörtuðu starfsmenn í stjórnsýsluhúsinu í bænum kvörtuðu til lögreglu vegna drónamyndatöku lögmannsins Braga Axelssonar við stjórnsýsluhúsið. Eiginkona Braga er bæjarritari Ísafjarðabæjar og staðgengill bæjarstjóra.

Í frétt bb.is staðfestir Bragi Axelsson, lögmaður, að hann sé sá sem var staðinn að verki við drónamyndatöku við stjórnsýsluhúsið á Ísafirði í síðustu viku. Aðspurður um tilganginn sagðist hann hafa verið að taka landslagsmyndir og hvaðst hissa á kvörtuninni.

„Það var falleg birta og ég tók nokkrar landslagsmyndir sem þó reyndust dekkri en ég vonaðist eftir. Setti drónann á loft við inngang skrifstofu minnar. Lögreglumaður kom við og sá myndirnar og fannst ekkert óeðlilegt við það og baðst afsökunar á að hafa truflað. 

Mér finnst gaman að taka myndir þó ég sé nú ekkert sérstaklega fær og langaði að standa aðeins upp og rétta úr mér og tók því nokkrar myndir. Ég hef tekið þúsundir landslagsmynda á drónann minn undanfarin ár án þess að fólk kvarti og með ólíkindum að ákveðnir starfsmenn í Stjórnsýsluhúsinu skuli láta svona.

Ég veit ekki betur en að lögreglumenn sjálfir taki oft drónamyndir þarna á svæðinu auk annarra dróna flugmanna. Það er með þetta eins og fleira að það er ekki sama hver er. Gaman að velta fyrir sér muninum á því að fljúga dróna þarna og taka bara myndir á farsíma því munurinn er sáralítill. Þarna kristallast bara óvild tiltekinna aðila í minn garð.“

Athugasemdir við frétt bb.is á Facebook halla allar á lögmanninn en þar er hann meðal annars sakaður um að njósna um starfsfólk Ísafjarðarbæjar með dróna.

- Auglýsing -

„Það vita margir hver þessi einstaklingur er. Er þetta ekki komið gott hjá honum hér í bæ. Farin að njósna um starfsfólk Ísafjarðarbær með dróna. Starfsfólk Ísafjarðarbær á alla mína samúð að þurfa að eiga samskipti við þennan litla mann.

Í annarri frétt bb.is sem birtist í dag kemur fram að beðið sé svara frá bæjarstjóra Ísafjarðar, Sigríði Júlíu Brynleifsdóttur, um drónaflug lögmannsins.

Var Sigríður spurð hvort drónamyndatakan hefði beinst að því að fylgjast með starfsfólki bæjarskrifstofunnar og ef svo væri, hvernig hún hyggðist taka á því.

- Auglýsing -

Í yfirliti sínu um störf sín í síðustu viku segir lögreglan á Vestfjörðum frá því að á föstudaginn síðastliðinn hafi lögreglunni borist tilkynning um einstakling sem væri að fljúga dróna nærri opinberri byggingu. „Rætt var við einstaklinginn og honum gert að láta af háttseminni“ segir lögreglan í yfirferð sinni.

Í fréttinni kemur fram að eiginkona Braga Axelssonar sé Bryndís Ósk Jónsdóttir sem er bæjarritar og staðgengill bæjarstjóra.

Nýjar reglur Evrópusambandsins um flug ómannaðra loftfara (dróna), hafa nú tekið gildi, samkvæmt Samgöngustofu og að reglurnar séu nú þegar komnar til framkvæmdar hér á landi. Reglugerð 1360/2024 innleiðir reglugerðir ESB 2019/947 og 2019/945 með breytingum.

Í reglugerðinni eru settar takmarkanir á flugi ómannaðra loftfara, en þar stendur meðal annars: „Óheimilt er að fljúga ómönnuðum loftförum innan 150 metra frá viðkvæmum stöðum, svo sem orkuverum, tengivirkjum, Alþingi, forsetabústað, ráðuneytum, sendiráðum, lögreglustöðvum, fangelsum og sjúkrahúsum, nema með heimild eigenda eða umráðenda.“ og einnig segir að um „flug í grennd við íbúðarhúsnæði eða þar sem fólk dvelur gilda reglur um vernd eignarréttar, friðhelgi einkalífs og persónuvernd.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -