Bæjarhátíðin Írskir dagar fóru fram á Akranesi um helgina en margt var um manninn. Einn af hápunktum hátíðarinnar er keppnin „Rauðhærðasti Íslendingurinn“ en í ár var það 22 ára gömul kona frá Mosfellsbæ sem hlaut þann eftirsótta titil. Vefur Akranesbæjar sagði frá úrslitinum.
Var þetta í 23. sinn sem keppnin er haldin en í ár tóku 40 þátt sem er mesti fjöldi sem mætt hefur í keppnina.
Það er hin 22 ára Lilja Björk Sigurðardóttir sem valin var „Rauðhærðasti Íslendingurinn“ árið 2022 og hlaut hún 40 þúsund króna gjafabréf frá Icelandair.
Í öðru sæti var hinn ungi Klettur Bjarmi Pétursson Hediðdísarson og í því þriðja var Heiða Norðkvist og hlutu þau bæði gjafabréf frá Frystihúsinu í verðlaun.