Þriðjudagur 22. október, 2024
1.6 C
Reykjavik

Segir alla á Vestfjörðum sammála um laxeldi: „Okkur er annt um náttúruna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gerður Sveinsdóttir segir alla á Vestfjörðum sammála um að laxeldi hafi haft jákvæð áhrif á Vestfirði.

„Á sunnanverðum Vestfjörðum hafði verið stöðug fólksfækkun í langan tíma. Ég ætla svo sem ekkert að rifja upp söguna það eru aðrir sem eru betur til þess fallnir en ég, en niðursveiflan var löng og mikils vonleysis gætti. Húsum og götum var ekki viðhaldið svo ég tali nú ekki um stofnanir bæjarins en það voru einfaldlega ekki til peningar til viðhalds. Þeir sem gátu og vildu fara fóru en margir voru fastir í átthagafjötrum þar sem ekki var markaður fyrir húsnæði á svæðinu og ef þú varst það „heppin“ að geta selt þá hafði það ekkert að segja upp í íbúð annars staðar á landinu þar sem húsnæðisverð var það lágt,“ sagði Gerður í pistli sem birtist á Vísi fyrr í dag.

„Ég er ein af þeim sem fór suður árið 2004, ég var heppin, ég seldi einbýlishúsið mitt fyrir 4,5 milljónir. Ég kom svo aftur árið 2011, keypti mér hús á 18,1 milljón og sprengdi markaðinn á þeim tíma. Fasteignamatið á húsinu mínu hefur hækkað um 400% síðan þá.“

Þá sagði Gerður að þó að ekki allir séu sammála um laxeldi þá verði ekki deilt um þau áhrif sem það hefur haft á samfélagið á Vestfjörðum. Þó að Gerður sé fylgjandi eldinu þá þýði það ekki að hægt sé að gera betur.

„Okkur er annt um náttúruna, lífríkið og samfélögin sem byggjast upp í kringum eldið og gerum kröfu til þess að umhverfisslys líkt og það sem átti sér stað í Patreksfirði endurtaki sig ekki. Við viljum að allir þeir sem að koma, hvort sem það eru fyrirtækin sjálf, ríkið eða aðrir leggi metnað sinn til þess að hægt sé að sinna þessari nýju atvinnugrein svo að sátt sé um og sómi sé að.

Það er ótrúlega erfitt og vont að hlusta á þá sem vilja útrýma þessari atvinnugrein, því þá eru þeir á sama tíma að vega að tilverurétti og afkomu fólks sem eftir allt sem á undan hefur gengið öðlast trú á framtíð samfélagsins hér fyrir vestan,“ sagði Gerður að lokum.

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -