Fyrsta legg hringferðar Sigríðar Hrundar Pétursdóttur, forsetaframbjóðanda um landsbyggðina er nú lokið.
Sigríður Hrund lagði land undir fót og heimsótti fimm staði á Norðurlandi; Sauðárkrók, Siglufjörð, Dalvík, Akureyri og Hvammstanga og voru viðtökur góðar að sögn Sigríðar. Dalamenn voru heimsóttir bæði á vinnustöðum en einnig við eldhúsborðið. Markmiðið var að eiga beint og milliliðalaust spjall við þjóðina á heimavelli og heppnaðist það vel. Mæting var góð og sköpuðust innihaldsríkar umræður.
Boðað var til opinna funda á sex stöðum víðsvegar um Norðurlandið, en auk þess sem Sigríður Hrund heimsótti vinnustaði og var að auki ítrekað boðið óvænt til kaffispjalls á heimilum fólks. Gæddu fundargestir sér á kaffi og með því að hætti heimamanna og tóku spjall um það sem skipti máli fyrir svæðið hverju sinni. Umræðurnar voru fróðlegar og einstaklega gagnlegar í farteskið fyrir komandi tíma.
„Ég var svo lánsöm að fá að hitta fólkið á landsbyggðinni á þeirra heimavelli. Sama hvar okkur bar niður virtist samhljómur í hugum fólks varðandi forsetaembættið. Það má segja að leiðarstefið í gegnum flesta fundina hafi verið mikilvægi þess að forseti hlusti vel á þjóðina, standi með þjóðinni og sé óháð í sinni afstöðu. Ég er afar þakklát fyrir móttökurnar og auðmjúk í hjarta. Það var dýrmætt að setjast niður persónulega með fólkinu og eiga þessi innihaldsríku samtöl um líf þeirra og framtíð, en ég er mætt til að þjóna í okkar þágu,“ segir Sigríður Hrund.
Næsta fundaröð Sigríðar Hrundar þar sem hún spjallar við þjóðina, verður á Austurlandi vikuna eftir Páska.