Landhelgisgæslan hélt samæfingu tveggja skipaáhafna á Siglufirði á dögunum.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2023/08/vardskipid-freyja-og-bjorgunarskipid-sigurvin-1024x540.jpg)
Ljósmynd: Guðmundur St. Valdimarsson
Áhöfnin á varðskipinu Freyju hélt á Siglufjörð á dögunum þar sem haldin var samæfing með björgunarskipinu Sigurvin. Samkvæmt síðu Landhelgisgæslunnar var markmið æfingarinnar meðal annars að prófa dráttargetur Sigurvins en þar var ekki riðið á garðinn þar sem hann var lægstur því Sigurvin var látinn draga varðskipið Freyju. Gekk æfingin einstaklega vel en Sigurvin dró varðskipið áfram á 1,2 hnúta ferð undir 60 prósenta álagi.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2023/08/samaefing-a-siglo-1024x576.jpg)
Ljósmynd: Guðmundur St. Valdimarsson
Samkvæmt síðu Gæslunnar er koma Sigurvins til Siglufjarðar afar mikilvæg en þar hafa sjófarendur eignast mikinn liðsstyrk með tilkomu þessa öfluga skips eins og það er orðað á síðunni. Til gamans má geta er varðskipið Freyja stærsta skipið í íslenskri skipaskrá. Að lokum segir á síðu Gæslunnar að æfingar sem þessar séu mjög mikilvægar til að stilla strengina enn betur saman en Gæslan og Slysavarnarfélagið Landsbjörg hafa í áratugi átt í traustu og góðu samstarfi.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2023/08/ahafnir_1693301031585-1024x576.jpg)
Ljósmynd: Guðmundur St. Valdimarsson