- Auglýsing -
Stakk af frá sjálfum mér í um það bil tvo klukkutíma í dag því ég var hugsi og áhyggjufullur.
Veðrið var ekki gott að flestra mati, kuldi og vindur, en svoleiðis veður elska ég meira en ristað brauð með smjöri, osti og rabarbarasultu.
Fljótlega eftir að ég skilaði mér til baka skrapp ég út í búð og keypti tvær dósir af túnfiski.
Önnur var fyrir kettina.
Át úr hinni sjálfur.
Lauk svo deginum með því að hlusta á lagið sem samið var um sjálfan mig, Can´t Take My Eyes Off Of You.
- Auglýsing -
Veit þó ekki hver samdi lagið en Andy Williams var sem fæddur til að syngja það.